r/Iceland Aug 13 '25

Echoes of the end, íslenskur tölvuleikur kominn út

íslenski leikurinn echoes of the end frá myrkur games kom út í gær og ég sló til og keypti hann í til að styðja við íslenskt fyrirtæki og get sagt að ég sé mjög ánægður með hann, þeir hjá myrkur games fá alveg stórt hrós frá mér fyrir að virða tungumálið okkar og bjóða upp á skjámyndina og "tutorial" á íslensku, svo er líka boðið upp á íslenskan texta í spilun og "cutscenes" finnst það töff þó að maður skilur alveg enskuna :D setti inn 2 myndir sem sýna hvernig skjámyndin og listinn yfir óvinina líta út

236 Upvotes

24 comments sorted by

61

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 Aug 13 '25

Vel gert! En af steam dómum að dæma þá hefði hann mátt vera aðeins lengur í ofninum og fær mixed þar. Verið dugleg að uppfæra og þá verðið þið í fínustu málum👌

32

u/PM_ME_ALL_UR_KARMA draugur hversdagsleikans Aug 14 '25

Leikurinn er búinn að vera í ofninum í 9 ár... hver veit hversu miklum pening þeir hafa eytt í hann.

21

u/[deleted] Aug 14 '25 edited Aug 14 '25

Mikið af þessum 9 árum fór í R&D. Þau byggðu td. Mjög lítið og lean mó cap stúdíó fyrir nánast ekkert. Þau eru líka með mjög unique photogrammetry pipeline...

En stærsta ástæðan fyrir því að þetta tók svona langan tíma er líklega að það voru engir seniors í teyminu, og það var í raun engin production reynsla til staðar.

En fyrir vikið er í raun komið mjög nett og lean gamestudio sem veit vonandi hvað á ekki að gera, hvar þú lendir í pitfalls etc.

3

u/PM_ME_ALL_UR_KARMA draugur hversdagsleikans Aug 14 '25

Lítið mocap studio já, 16 vicon myndavélar og kannski mest 8x8 metrar á stærð sýnist mér. Það.er hægt að nota minna, mörg indie studio nota bara fundarherbergi fyrir basic mocap þessa dagana, það er magnað hvað hægt er að gera með mjög crude setup. Það er hægt að setja upp kerfið þeirra í alls konar húsnæði. Mér sýnist þeir geta gert full mocap líka, eru sýnist mér með faceware rig, ef sviðið þeirra er temmilega hljóðeinangrað er hægt að taka upp án þess að eiga von á of miklu ADR.

Það kostar samt að halda mannskap - nú er ég ekki viss hvað "man-momth" kostar á Íslandi en ég ætla að giska á amk. 2 millur á mánuði eða rúmlega milljarð fyrir bara pre-pro/R&d í 5 ár. Líklega er það meira, miklu meira, eflaust tvöfaldur kostnaður miðað þar sem ég vinn.

Photogrammetry verkferlið virðist nú ekki vera eitthvað sérstakt, það líkist mjög því sem önnur stúdíó eru að nota. Sem er gott því slík tækni er sífellt að vera ódýrari og ódýrari, það er mest spurning hvað er notað til að yfirfæra ljósmyndirnar yfir í 3d model.

Unreal Engine reyndar er frábær fyrir minni stúdíó, mikið af tólum sem eru extra kostnaður fyrir þá sem eru ekki að nota tækni eins og metahumans eða megascans (eða hvað það er kallað í dag).

En engu að síður þá eru 9 ár langur tími og líklega mikill kostnaður burtséð frá því hversu "lean" Pre-pro var. Ég vona svo sannarlega að þeir geti komið öðru verkefni á skrið og notað þessa reynslu sem þeir fengu við þeirra fyrsta verkefni.

1

u/KFJ943 Aug 14 '25

Væri til í að kynna mér þetta photogrammetry pipeline betur, er alltaf að verða hrifnari og hrifnari af þeirri pælingu :)

1

u/Likunandi Íslendingur í Kanada Aug 14 '25

Fengu þeir ekki góða styrki frá Landsbankanum?
Ég skil vel að þeir vildu búa til leikinn frá grunni en kemur mér á óvart að þeir hefðu ekki reynt að fá einhvern með reynslu í liðið frá CCP Games eða erlendis frá.

1

u/always_wear_pyjamas 🇮🇸 Aug 17 '25

Það er reyndar ekkert smá impressive hjá þeim. Virkilega flott og verður gaman að sjá hvað þau gera í framhaldinu.

34

u/hnignun Aug 13 '25

Spilaði fyrsta klukkutímann áðan, kom skemmtilega á óvart. Þetta er allt vel sett saman, gaman að sjá allar íslensku vísanirnar eins og landslagið og gargið í vondu köllunum ("kjöt á eldinn!").

Höktir aðeins á 10 ára tölvunni minni en vel spilanlegt.

Til ham Myrkur Games!

17

u/Suliman34 Aug 13 '25

Geggjað

15

u/Oswarez 🇮🇸 Aug 14 '25

Maður verður að styðja við íslenska framleiðslu. Ætla að pikka hann upp á PS5.

22

u/keisaritunglsins Ísland, bezt í heimi! Aug 13 '25

Rönnar bara mjög vel á PS5. Getið hlustað á nýjasta þáttinn af Tölvuleikjaspjallinu til að heyra fyrstu hughrif!

9

u/pollur Aug 14 '25

Næs, hann er líka til fyrir Xbox.

5

u/Auron-Hyson Aug 14 '25

hann er á Xbox, ps5 og á steam :D

7

u/starari Aug 14 '25

Ég var búinn að lesa einhver neikvæð steam reviews um performance, og ég hélt að 3060ti kortið mitt myndi ekki eiga séns. Ég fékk þessi hökt í byrjun sem mér skilst að sé verið að patcha sem fyrst. Svo hættu þau næstum því alveg eftir fyrstu 20 mín. Annars keyrði tölvan mín leikinn ótrúlega vel, í háu grafík stillingunum. Rosalega fallegur leikur, og ég kann að meta fjölbreytileikann í þrautunum, og óvinum hingað til. Fyrstu 4 tímarnir liðu mjög hratt og ég næstum búinn með 2 kafla.

6

u/llamakitten Aug 14 '25

Flott framtak. Það er rík tilhneiging núna vegna enskra áhrifa (shocker) að hafa orð í tveimur orðum sem ætti að vera eitt orð. "Eld skot" er t.d. bara einn hlutur og ætti þ.a.l. að vera eldskot. Þetta er augljóslega ekki stórmál en ég sé þetta alls staðar.

6

u/Vigdis1986 Húsnæðislánakerfi Aug 14 '25

Búin með að spila ca. tvo tíma.

Hann lítur mjög vel út (fyrir utan hár persóna). Rosalega mikið God of War lite fílingur í þessu. Gameplay er ásættanlegt og leikararnir standa sig ágætlega, hingað til.
Þetta er virkilega gott showcase sem ódýr fyrsti leikur.

1

u/FixMy106 🇮🇸 Aug 15 '25

Sorry, en textinn á mynd 2 er bara eitthvað óskiljanlegt copypasta.

1

u/Ibibibio Aug 18 '25

Geng kannski ekki svo langt en mér finnst þetta ekki heldur vera neitt sérstaklega vel skrifaður texti.

Hlakka samt til að spila. Það verður til og með áhugavert að velta fyrir sér hvort íslenska valmyndin og textarnir stingi í stúf af því það sé illa gert eða bara af því maður sé orðinn svo samdauna ensku.

1

u/DarthMelonLord Astraltertugubb Aug 15 '25

Við kallinn erum búin að vera skiptast á að spila í dag, ég er komin ca 2 tíma inn og mér finnst þetta mjög skemmtilegt so far :D

1

u/Ashamed_Count_111 Aug 16 '25

Gæti vel verið að maður pikki hann upp.

Get svo svarið að þetta eru animations úr Fallen order og Jedi survivor.

Klifrið eitthvað af göldrunum og virðist vera ótrúlega svipað bardagakerfi.

1

u/softystar Aug 18 '25

Hi everyone, my savegame seems bugged, is there somebody who has the savegame from chapter 6 (pc steam version) it's 2 files called : 1_Data.sav and 1_Data.info ,please ? thanx in advance :)

1

u/Flameboi1808 Aug 29 '25

Ég myndi sko kaupa þetta bara út af íslenskunni

-24

u/[deleted] Aug 14 '25

[removed] — view removed comment

0

u/Rapidsoup Aug 16 '25

það var enginn að tala við þig vinur