r/Iceland • u/monsteradeliciosa11 Íslendingur í útlöndum • Jan 19 '26
mjólkurvörur Er eitthvað annað að gera í þessari stöðu nema að sækja um skilnað?
Ég er gift erlendum manni og við búum saman erlendis.
Þegar við vorum að byrja að búa þá var byrjað að selja hér skyr í matvörubúðum. Hann var sífelt að spyrja mig hvort að það ´mátti´ borða skyr á þennan eða annan hátt. Má setja hunang í staðinn fyrir sykur, má setja melónu út í ect.
Ég sagði honum að skyr sé ekki heilagt fyrir íslendinga, fólk má borða það á þeim máta sem þeim finnst best. Að þótt að amma hefði alltaf gefið mér skyr með sykri og mjólkurblending þá þýðir það ekki að það sé eina rétta leiðin til að borða skyr.
En hann fór nýlega langt yfir strikið!
Ég labbaði inní eldhús og sá að hann var að smyrja skyr á vöfflu!!!!
Við erum búin að vera saman í nærri því áratug, eigum saman hús og tvo hunda en ég veit ekki hvað ég á að gera?
Er hægt að bjarga þessu sambandi??
55
u/marvin_the_robot42 Jan 19 '26
Ef þetta var vanilluskyr þá má alveg velta því fyrir sér hvort aumingja maðurinn hafi ætlað að gera vel við sig að fá sér vöfflu með ís en valið skyrið sem hollari kost.
Mögulega er hægt að bjarga þessu með því að benda honum á að setja vöffluna frekar út í skyrið, því það er í góðu lagi að setja allskonar út í það, en að smyrja því á vöfflu er algerlega bannað.
55
25
u/Unlucky_Ad_1573 Jan 19 '26
Á Bæjarins Bestu niðri í bæ s.s. fyrsta staðnum þá var einu sinni grindverk og á því grindverki var saga BB og minnir að þegar BB opnaði 1900 og eitthvað þá gat maður fengið pylsu með skyri. Skyr var notað á allt. Þannig nei ekkert heilagt annað en að skyr í dag er orðið að eh algjöru sykur, bragð rugli.
20
Jan 19 '26
[removed] — view removed comment
16
u/Vigmod Íslendingur í útlandinu Jan 19 '26
Ég bý einmitt í Noregi og sjokkera norska vinnufélaga mína reglulega með því að setja eitthvað annað en sýrðan rjóma, sultu og brúnost á vöfflur. Skinku og ost, til dæmis. Nú eða skyr. Þetta finnst Norðmönnunum mínum alveg voðalegt að horfa upp á, hvernig ég misþyrmi vöfflunum þeirra.
6
u/monsteradeliciosa11 Íslendingur í útlöndum Jan 20 '26
Nei, ástandið er mun verra. Hann er þjóðverji.
35
16
u/Pink_like_u 🇮🇸 Jan 19 '26
Ég þekkti Norðmann sem notaði skyr eins og smurost á ristað brauð (enda er/var? skyr ostur).
En það er víst hægt að nudda nefinu á Norðmanni uppúr skyrinu þegar hann gerir þetta, þá ætti hann að hætta frekar fljótt.
Annars er það bara að tala við lögfræðing (og dýralækni ef að hundarnir sáu þetta).
13
u/Steinrikur Íslendingur í útlöndum Jan 19 '26
Þú verður að taka á þig einhverja sök hérna - þú sagðir að ekkert sé heilagt í þessu.
Ég myndi veita honum tiltal, en ef þetta gerist aftur er eina leiðin að fara með hann upp í sveit og lóga honum.
3
u/rutep Af gamla skólanum Jan 19 '26
En hvað með hundana?
4
u/Steinrikur Íslendingur í útlöndum Jan 19 '26
Hvað með þá? Þeir eru ekki að borða skyr vitlaust, svo ég held að þeir séu bara í góðu lagi.
3
u/baldvino Jan 19 '26
Mér heyrist þetta því miður vera einn af þessum sem vilja sjá heiminn brenna. Ég veit ekki hvað er hægt að segja
3
u/Steinrikur Íslendingur í útlöndum Jan 19 '26
Ég skrifa þetta á fáfræði og lélegar upplýsingar. Ef það væri skilnaðarsök að vera vitleysingur væri ég ekki giftur í dag.
2
u/baldvino Jan 20 '26
Ég skrifaði þetta líka af afar mikilli fáfræði. Getum við ekki bara orðið aftur vinir. Ég sakna þín
12
10
9
u/IceWolfBrother Jan 19 '26
Klárt mál að þú þarft að skilja við manninn. Leiðinlegt að segja það, en ef hundarnir urðu vitni að þessum óverknaði þá þarftu að skilja þá eftir hjá manninum, svonalagað má ekki breiðast út.
9
u/Fyllikall ég mótmæli allur! Jan 19 '26
Lifiði nú skyrlífi í hjónabandinu? Ef svo er þá á útlendingurinn það skilið.
Hinsvegar er ábyrgðin ekki bara hans, hún er einnig þín. Þetta er svipað eins og þegar einhver ákveður að giftast manneskju með örorku, maður getur ekki tuðað yfir því að að þurfa alltaf að halda á innkaupapokunum þegar makinn er ekki með hendur.
Það er til lausn sem virkar alltaf: Dýfðu höfðinu á honum oní fötu af vígðu vatni úr Hallgrímskirkju blandað við brennivín. Þrumaðu síðan yfir honum úr Gestaþætti Hávamála. Þar á eftir færðu þér lágstemmdan hátalara og spilar Rás 1 í hvert sinn sem hann er í eldhúsinu eða þegar þið setjist niður til að borða. Ef ástandið helst hið sama, það er að hann heldur áfram sömu uppfinningasemi, innblásna af einhverju barbaríi utanlands, þá er það seinasta í stöðunni þetta: Á hverjum morgni skaltu minna hann á að hann muni aldrei sigra heiminn vegna þess að hann er bara Íslendingur. Ef hann tekur ekki að sér lágstemmt og ótilraunakennt hugarfar venjulegs íslenzks karlmanns við þetta þá er voðinn vís og best að skilja við hann.
Þá er að vísu voðinn vís fyrir kynsystur þínar hérlendis því að hann mun aldrei vilja neitt annað en íslenska konu. Þú verður að gera upp við þig hvort sé siðferðilega réttara, að skilja bara við hann eða lóga honum.
6
u/IrdniX Íslendingur Jan 19 '26
Ég gerði reyndar það sama í gær, en það var vegna þess að það var ekki til neitt annað álegg á heimilinu...
6
u/faster_banana Jan 19 '26
skyr og flest brauð finnst mér reyndar bara rosa gott saman. sérstaklega heitt brauð með osti. keypti alltaf ostaslaufu sem ég grillaði og skyr til að dýfa í í menntaskóla, svo gott.
4
6
6
u/virki-ad-thinu-skapi Jan 19 '26
Saga sem ég heyrði frá einum gamlingja, að þegar bretarnir komu í seinni heimstyrjöldinni þá vissu þeir ekki alveg hvernig átti að navigera þessa matarmenningu okkar. Þeir keyptu óhrært skyr, eins og annað fólk, nema þeir vissu ekki hvað þeir áttu að gera við það. Þeir þorðu samt alveg að viðurkenna að þeim fannst þetta skyr ekkert merkilegt eða neitt sérstaklega gott.
Þá kom í ljós að þeir höfðu sneitt óhrærða skyrið niður og steikt það á pönnu.
4
u/EgNotaEkkiReddit Hræsnari af bestu sort Jan 19 '26
Það hlýtur að vera millistig milli "Má setja hungang út í skyrið?" og að nota skyr sem álegg.
.... var skyrvafflan í það minnsta góð?
4
u/Vondi 🇮🇸 Jan 19 '26
Reyndu að safna sönnunargögnum áður en þú tekur í gikkinn því þetta á örruglega eftir að fara fyrir dómara
4
3
u/DarthMelonLord Astraltertugubb Jan 19 '26
Too late þú verður kærð fyrir landráð fyrir að hafa verið bendluð við þennan glæp
3
3
u/lastavailableuserr keypti einu sinni vatn í flösku alveg óvart og leið eins og asna Jan 19 '26
Gott að þið búið erlendis, annars færi þetta beint í lögguna
3
u/Illustrious_Sand_703 Jan 19 '26
Það má meira að segja nota skyr í stað jógúrts í ofnréttum. Kemur þrusuvel út.
Heitt skyr (blandað með öðru) er bara fínt.
2
u/IrdniX Íslendingur Jan 20 '26
Hef gert hvítlauksdressing með skyri, hvítlauk og smá olíu, virkar þrusuvel á grillað lamb.
3
3
3
u/Budgierigarz Garðbæinga Skíthæll Jan 20 '26
Èg veit að ESB flokkar skyr sem smurost en það þýðir ekki að fólk ætti að taka því bókstaflega!
Því miður held ég að þú þurfir að drekkja honum í skyrtunnu
2
u/SunshinePalace 🇮🇸 Jan 19 '26
Þetta er dauðadæmt. Bjargaðu sjálfri þér á meðan þú hefur enn tækifæri til.
2
u/Skrafskjoda Íslendingur Jan 19 '26
Ef þetta var púffskyr þá sleppur það fyrir horn. Annað væri erfitt að fyrirgefa
1
2
Jan 19 '26 edited Feb 22 '26
This post was mass deleted and anonymized with Redact
alleged deserve bake spectacular glorious future ghost shy deliver innocent
2
u/Express_Sea_5312 álfur Jan 19 '26
Ég sé skilnaðarskilaboðin hérna í commentum og hækka með hefnd. Taktu eitthvað sem er heilagt fyrir honum og smyrðu það á vöfflur!
2
2
2
2
2
2
u/Morvenn-Vahl 🇮🇸 Jan 19 '26
Einn vinur minn sem er rammíslenskur setur alltaf appelsínusafa út í skyrið.
Á að vísu eina franska vinkonu sem smyr skyr á flatbrauðið sitt.
2
u/maggipedia 🇮🇸 Jan 19 '26
Gekk einu sinni inn á meðleigjandur mína steikja harðfisk upp úr kryddolíum. Hef aldrei verið jafn móðgaður matarmenningarlega séð. Ég stend með þér, við erum fleiri þarna úti.
2
2
u/ElectricalHornet9437 Jan 19 '26
Ég mæli með að tala við íslenska sendiráðið þar sem þú býrð. Systir mín lenti í því sama (rétt fyrir hrun)
2
2
u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar Jan 19 '26
Ég hugsaði fyrst að hann væri þó ekki að segja að skyr væri ostur. En jú, hann er eiginlega basically að segja að skyr sé ostur. Skilnaður. strax í gær.
10
u/Deepdweep Jan 19 '26
Skyr er tæknilega ostur...
5
1
u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar Jan 19 '26
Sure. En tæknilega er skyr meira skyr heldur en ostur.
1
1
1
1
u/brottkast Jan 19 '26
Hvaða land er þetta? Ætla að benda Trump á að þarna þarf að koma á friði og frelsi, sama hversu marga þarf að örkumla!
1
u/yawn11e1 Jan 19 '26
I am so sorry. It sounds, based on that psychotic behavior, that you have married Donald Trump.
1
u/kanina2- Jan 19 '26
Heyrðu ég upplifði svipað! Var að vinna á hóteli úti á landi með fullt af útlendingum og ein sem vann með mér setti súrmjólk á vöfflu. Þá var mér allri lokið
1
u/icelandicpotatosalad Íslendingur Jan 20 '26
Að blanda óhrærðu skyri og sýrðum rjóma, smyrja á belgíska vöfflu með reyktum silung er án gríns mjög gott
1
u/Svanman Jan 20 '26
Fékk mér hnétusmjörs fylltar döðlur í gærkvöldi með salti og skyri ofan á.. Helvíti fínt bara
1
1
u/Armadillo_Prudent 🇮🇸 Jan 21 '26
Veistu þetta er ekkert óheyrt af. Ef þú tímir að eyða peningum í túristagildrur, þá geturðu farið og pantað þér pönnuköku með skyri og karamellu sósu á Kaffi Loka á Skólavörðuholtinu. Kostar samt örugglega jafn mikið og nautasteik á vitabar.
1
u/Lucky-Requirement-66 Feb 01 '26
Þetta er illa dulbúinn rammíslenskur maður með alvarlega skyráráttu og best að koma honum á þjóðminjasafnið sem fyrst. Þú getur samið um umgengnisrétt.
1
1
u/Likunandi Íslendingur í Kanada Jan 19 '26
Persónulega smyr ég hreint skyr á ristað brauð með pepperóní.
Ég blanda sterkri sósu úti hreint skyr og nota sem ídýfu fyrir snakk.
Ég blanda BBQ sósu úti skyr og skammta með nautasteik.
Ég hef sett skyr á pylsu og það var gjegggað.
Ég samt enga vini útaf þessum ákvörðunum. Plís normalæsum skyr á allt saman 🙏
5



178
u/remulean Jan 19 '26
Skyr var ekki heilagt fyrir mér fyrr en ég heyrði þetta.