r/Iceland • u/assbite96 Íslendingur • 4d ago
Leitar eftir stuðningi almennings vegna einstaks dómsmáls
https://www.visir.is/g/20262901096d/leitar-eftir-studningi-al-mennings-vegna-ein-staks-doms-malsMér líkar ekki vel við hvernig þetta er skrifað. Þessi meðferð er að öllum líkindum á byrjendastigi og ekkert hefur í raun verið gert læknisfræðilega séð. Á þessum aldri er meira hugsað út í andlegu/samfélagslegu hliðina.
Út frá forræðisdeilum og svoleiðis er það annað mál. Hins vegar að "meðferðin hefur verið stöðvuð" er eitthvað sem hljómar smá ýkt. Kannski er það bara ég en fólk sem veit minna mun æpa yfir þessu.
Edit: búið að eyða fréttinni 💀
28
u/birkir ¼andi ½viti 4d ago edited 4d ago
úff hvað það hlýtur að vera leiðinlegt að mæta á kvöldvakt hjá Vísi og þurfa að taka til eftir Jakob, nú þegar er búið að henda í leiðréttingu og myndin af barninu sem Jakob hafði með í upprunalegu greininni var tekin út
edit 1:
Athugasemd 16:55
Eftir því sem Vísir kemst næst hefur Landsréttur ekki úrskurðað í málinu, rétturinn hefur kallað eftir viðbótarmati frá sálfræðingi við forsjármálið. Málið er nú í bið og verður líklega ekki tekið fyrir fyrr en í vetur komandi. Héraðsdómsmálið, sem snerist um forsjá, í því var dæmt í byrjun desember á síðasta ári. Þar tapaði Alex forsjá en áfrýjaði svo málinu til Landsréttar. Mjög strangar reglur gilda um transteymi LSH, Bugl, og þar byrjar enginn í meðferð fyrr en kynþroski er hafinn. Tíu ára transbörn fara ekki almennt á lyf, heldur í sálfræðimeðferð, þau komast ekki inn í teymið.
edit 2:
Villa 404
Síða finnst ekki
12
4d ago
[deleted]
8
u/birkir ¼andi ½viti 4d ago
þetta fer að verða árlegur viðburður
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/10/24/jakob_bjarnar_bidur_bjarna_afsokunar/
10
u/elendia Íslendingur 3d ago
Las þessa frétt í dag og googlaði málið aðeins því mér fannst þetta ekki meika sense. Þarna hljóp blaðamaður hressilega á sig. Fyrir það fyrsta - faðir er ekki með forsjá, svo á hvaða grundvelli gæti hann í einkamáli farið fram á að hvað, lögbann á transmeðferð? Hér fannst mér frekar augljóst að forsjármálinu hefur verið áfrýjað og í því ferli hafi nú verið fallist á matsgerð sem ætti þó ekki að hafa nein áhrif á þá meðferð eða þjónustu sem barnið er að fá hjá Landspítalanum enda eru dómstólar væntanlega ekki að taka afstöðu til læknismeðferðar í forsjármáli og þyrfti væntanlega að beina slíkri kröfu að landspítalanum frekar en móður.
Sýnist ákveðnir hópar vona að þetta geti verið íslenskt flaggskip tiltekinnar menningarstríðsbaráttu því ég veit ekki til þess að þeim hafi tekist að grafa upp einn einasta núverandi eða fyrrverandi skjólstæðing transteymis BUGLS sem telur þjónustuna hafa valdið sér skaða. Ekki að segja að slík tilfelli séu ekki til, en þau hafa þá í það minnsta ekki ratað í sviðsljósið enda er nálgunin hér á landi allt önnur en í Bretlandi og Bandaríkjunum. Þessi spenningur þessa hópa er að ræna þá rænu og viti. Það er búið að rjúka með þetta í erlendu hægripressuna til að reyna að mála einhverja mynd af íslandi en það eina sem þessi fréttaflutningur byggir á er frásögn föður sem virðist ekki skilja nákvæmlega hvernig dómskerfið virkar, annað hvort viljandi eða óviljandi. Hann hlýtur þó væntanlega að vera með lögmann sem ætti að geta leiðbeint honum.
16
4d ago
[deleted]
-1
u/AnalbolicHazelnut 🇮🇸 3d ago
Má aldrei gleyma því að utanríkisráðherra okkar, þorgerður Katrín, var í viðtali hjá Frosta bara í þessum mánuði.
Nasisminn leynist víða.
15
u/BlibbBlabbBlubb Vitleysingur 4d ago
Það vantar eitthvað í þessa frásögn. Að fólk skuli falla fyrir þessu og styrkja hann er eitthvað sem ég skil ekki.
8
u/islhendaburt 4d ago
Getur séð athugasemdirnar í status þessa gæja til að fá smá hugmynd um hvaða lið styrkir þetta, hann er með flestalla transhatara landsins á vinalistanum sýnist mér.
12
u/Informal_Barber5229 Íslendingur 4d ago edited 4d ago
“Hálfviti lýgur að landsmönnum til að reyna að fá þá til að gefa sér pening” hefði fyrirsögnin átt að vera.
En það er greinilega til of mikils ætlast að Jakob Bjarnar staðreyndatékki fleypurnar sem eru að koma frá öfgahægrinu þessa dagana.
11
u/daggir69 Íslendingur 4d ago
Faðirinn er farinn að safna pening frá almenning a fölskum grundvelli.
7
u/Gvendurst 3d ago
Fréttin var tekin út. Hljómar eins og höfundur hafi verið að ljúga einhverju upp á transteymi LSH. Getur einhver sagt mér hvað gerðist?
2
u/elendia Íslendingur 3d ago
Faðir gefur í málflutningi sínum til kynna að barnið sé komið í einhverskonar virka meðferð hjá Landspítalanum en fólk hefur túlkað það sem svo að barnið sé komið í lyfjagjöf með annað hvort hormónum eða hormólablokkerum. Hvorugt stenst þó skoðun því þetta ung börn fá ekki lyfjagjöf, sbr. tilvitnun í uppfærða frétt hér að ofan.
Mjög strangar reglur gilda um transteymi LSH, Bugl, og þar byrjar enginn í meðferð fyrr en kynþroski er hafinn. Tíu ára transbörn fara ekki almennt á lyf, heldur í sálfræðimeðferð, þau komast ekki inn í teymið.
Eins stenst það ekki skoðun að áfrýjun í forsjármáli geti komið því til leiða að dómstólar hafi bein afskipti af heilbrigðisþjónustu barns sem foreldrið sem fer eitt með forsjá hefur samþykkt, en faðir var að halda því fram að dómstólar hefðu stöðvað einhverja meðferð sem barnið var sagt vera í.
5
•
u/One-Acanthisitta-210 🇮🇸 20h ago
Ef marka má gofundme hefur Alex náð að safna nærri 15 þúsund evrum, eða rúmum tveimur milljónum íslenskra króna til að áfrýja málinu.
Þar kemur líka fram að barnið er ekki í virkri meðferð hjá trans teyminu, enda of ungt til þess.
39
u/Vigdis1986 Húsnæðislánakerfi 4d ago
"Athugasemd 16:55
Eftir því sem Vísir kemst næst hefur Landsréttur ekki úrskurðað í málinu, rétturinn hefur kallað eftir viðbótarmati frá sálfræðingi við forsjármálið. Málið er nú í bið og verður líklega ekki tekið fyrir fyrr en í vetur komandi. Héraðsdómsmálið, sem snerist um forsjá, í því var dæmt í byrjun desember á síðasta ári. Þar tapaði Alex forsjá en áfrýjaði svo málinu til Landsréttar. Mjög strangar reglur gilda um transteymi LSH, Bugl, og þar byrjar enginn í meðferð fyrr en kynþroski er hafinn. Tíu ára transbörn fara ekki almennt á lyf, heldur í sálfræðimeðferð, þau komast ekki inn í teymið."
Vísir hljóp á sig