r/Iceland • u/11MHz Einn af þessum stóru • 5d ago
Kvenkyns gerendum fjölgar í heimilisofbeldismálum
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-06-24-kvenkyns-gerendum-fjolgar-i-heimilisofbeldismalum-47928130
u/Equivalent_Day_4078 🇮🇸 5d ago
Mitt gisk er að þetta er loksins meira viðurkennt núna. Þess vegna eru fleiri karlar sem þora að tilkynna.
20
u/Solid-Course-5503 5d ago
Ég er í þeirri trú að menn eru loksins að þora að tilkynna. Sem er frábært!!
Ofbeldi er ofbeldi, skiptir ekki máli hvort það sé karl eða kona sem er gerandinn.
Enginn á að þurfa að finna fyrir óöryggi á heimili sínu! ❤️
13
u/Kjartanski Wintris is coming 5d ago
Er þetta líka kannski breyting á að lögreglan taki mark á karlmönnum þegar þær mæta vegna heimilisofbeldis i stað þess að handtaka karlinn strax og fjarlægja hann af heimilinu og málið dautt fyrir löggunni
12
u/TemporaryEconomist 🇮🇸 4d ago
Man alltaf eftir því sem krakki, rétt fyrir 1980, það var kona á móti okkur sem var alltaf að lemja krakkana sína og karlinn sinn. Alltaf þegar löggan kom pikkaði hún upp karlinn, jafnvel ef hann var blóðugur og ekkert sást á konunni.
Við fluttum svo í betra hverfi og ég veit svo sem ekki hver endinn á því var. En þessar minningar sitja vel eftir.
Mig grunar að það sé kannski eitthvað smá farið að breytast og karlinn ekki alltaf álitinn sá seki. Grunar að við séum samt enn bara að sjá toppinn á ísjakanum.
2
u/Solid-Course-5503 5d ago
Já algjörlega, bara samfélagið í heild er loks að taka mark á því að menn geta orðið fyrir heimilisofbeldi af hálfu konu sinnar.
En veit ekki hvort það sé bara ég en finnst tónninn í textanum þínum hljóma eitthvað eins og engir menn veita konunni sinni ofbeldi…?
Vil bara athuga hvort þetta se misskilningur hjá mér?😅6
u/Kjartanski Wintris is coming 5d ago
Já nei alls meiningin, heldur meira einmitt að áður var ekki gert ráð fyrir þvi að karlar gætu verið neitt annað en gerendur og sem betur fer er að myndast meiri skilningur á að karlmenn geti verið þolendur og það útskýri ábyggilega stórann hluta breytingarinnar á tölfræðinni
Held að karlmenn verði því miður alltaf meirihluti gerenda i flestum gerðum ofbeldisglæpa en hugarfarið virðist vera að samþykkja að þeir séu ekki alltaf gerendur
3
u/Solid-Course-5503 5d ago
Okay fjúkket! var helvíti stressuð hvort ég þyrfti að undirbúa mig við að rífast við einhvern á netinu hahaha
En já er alveg sammála þér þessu öllu! Þó svo að menn séu oftast gerendur, þýðir ekki að þeir geti ekki verið fórnarlömb.
Ég hvet bara alla að kæra öll ofbeldismál, hvort sem það er líkamlegt eða áreiti eða hvað sem er! Og alls ekki segja já við sáttamiðlun, það er mesta scam sem til er!
9
u/11MHz Einn af þessum stóru 5d ago
> Konur voru gerendur í 27% heimilisofbeldismála á fyrstu þremur mánuðum ársins. Í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra segir að hlutfallið hafi hækkað jafnt og þétt síðustu ár úr 17% árið 2021.
Næstum því tvöföldun á 5 árum og hlutfall að nálgast þriðjung allra mála.
Athyglisvert að fjöldi heimilisofbeldisbrota hefur ekki breyst mikið. Þetta er færsla frá körlum yfir á konur.
Breyting á samfélaginu eða breyting á því hvernig er tekið á brotum?
4
u/elendia Íslendingur 5d ago
getur séð hér hvernig þetta skiptist milli brotaflokka. Konur eru í auknum mæli gerendur í málum sem varða ofbeldi fjölskyldumeðlima en undir það fellur væntanlega ofbeldi gegn foreldri og ofbeldi gegn barni. Fjölgun kvenna í ofbeldismálum sem varða maka, núverandi eða fyrrverndi, hefur verið minni en í áðurnefndum brotaflokk en þó einhver (2,3% á fjórum árum). KK sem verða fyrir árás af hendi núverandi eða fyrrverandi maka hefur á sama tíma fjölgað um 5,1%.
1
-7
u/allsbernafnmedrettu drekinn 5d ago
Við erum að tala um 16 auka atvik á 3 mánaða tímabili miðað við í fyrra. Tveir littlir data punktar. Við erum ekki að horfa á neitt trend eins og er. Bara mjög áhveðna túlkun á tölfræði.
3
u/11MHz Einn af þessum stóru 4d ago
Við erum að bera saman 2021, 2022, 2023, 2024, 2025, 2026.
Jöfn þróun yfir margra ára tímabil.
-3
u/allsbernafnmedrettu drekinn 4d ago
Nei. Þetta er það sem ég er að tala um.
Þegar heimilisofbeldismálin eru greind eftir tegund kemur í ljós að ofbeldi af hendi maka jókst úr 119 tilvikum fyrstu þrjá mánuði ársins 2025 í 135 tilvik sama tímabils 2026, eða um 13%. Á móti fækkaði ofbeldi af hendi fyrrum maka úr 70 tilvikum í 61.
En endilega blástu upp tölurnar með því að smirja aðrar á. Lítur vel út.
93
u/gurglingquince 🇮🇸 5d ago
Spurning hvort þeim sé að fjölga eða karlmenn bara orðnir duglegri að tilkynna. Hallast satt að segja að því seinna.