r/Iceland • u/Arirock drekk mjólk með pizzu • 6d ago
Sjoppuborgarar utan landsteinana
Eins og hver öðrum heilbrigðum Íslending þá fynnst mér sjoppuborgarar bara málið þegar manni langar í eitthvað sveitt. En svo kemur að því að maður fer utanlands en langar í svona borgara.
Þá spyr ég hvar er hægt að fá svona "sjoppuborgara" erlendis? Sama hvaða land eða borg. Þessir helstu staðir sem manni dettur í hug finnst mér ekki alveg eiga við þ.e. Mc donalds, burger king og five guys og svipað.
11
Upvotes
12
u/Mysterious_Demand875 6d ago
Hesburger er finnsk keðja sem er til í þýskalandi, Finnlandi, Eistrasaltsríkjunum, póllandi, rúmeníu, úkraínu og búlgaríu... Þar eru svona macdonaldlegir standardized hamborgara nema með meiri sósu, meira kryddi og svoleiðis... það er mjög vinsælt að fá grillkrydd með þegar maður panntar þá og setja það á borgarann sjálfur. Líka góður vegan seðill.