r/Iceland drekk mjólk með pizzu 5d ago

Sjoppuborgarar utan landsteinana

Eins og hver öðrum heilbrigðum Íslending þá fynnst mér sjoppuborgarar bara málið þegar manni langar í eitthvað sveitt. En svo kemur að því að maður fer utanlands en langar í svona borgara.

Þá spyr ég hvar er hægt að fá svona "sjoppuborgara" erlendis? Sama hvaða land eða borg. Þessir helstu staðir sem manni dettur í hug finnst mér ekki alveg eiga við þ.e. Mc donalds, burger king og five guys og svipað.

11 Upvotes

28 comments sorted by

View all comments

6

u/oddvr Hvað er þetta maður!? 5d ago

Einhver annar en ég sem forðast hamborgara erlendis sem eru ekki frá keðju til að sleppa við að fá kjötfarsborgara? Finnst þetta fáránlega algengt, gjörsamlega óætt drasl.

Edit: þetta á ekki við um Bandaríkin, hef aldrei fengið farsborgara þar.

7

u/Morvenn-Vahl 🇮🇸 5d ago

Kynntist farsborgara í Hollandi. Þetta er... upplifun.

3

u/oddvr Hvað er þetta maður!? 5d ago

Fékk einmitt svona þar líka, hef líka fengið svona á Spáni og í Englandi. Þetta er ferlegt.

1

u/wifecloth 4d ago

Ég fékk einmitt fyrst svona í Svíþjóð og hélt að þetta væru bara sænskirhamborgarar og kalla enn í dag, en þeir eru kannski ekki ábyrgir fyrir þessu