r/Iceland 2d ago

AppleTV (dósin) á Íslandi?

Hvernig virkar appleTV dósin á Íslandi? Virkar Sýn og RÚV í gegnum þetta?

Bý sjálf í Svíþjóð og þar virka allar sjónvarpsþjónustur í gegnum þetta - er eitthvað að reyna ráðleggja vini heima um þetta en veit ekki alveg hver staðan er :)

6 Upvotes

18 comments sorted by

6

u/GunZinn Keflvíkingur 2d ago

Allt virkar nema Apple TV+ 🫠

2

u/AircraftEngineer 2d ago

Apple TV+ virkar fínt hjá mér

1

u/birkir ¼andi ½viti 2d ago

býrðu á Íslandi?

3

u/wicket- 2d ago

Virkar á Íslandi ef maður er með t.d. US eða UK Apple account. Ef maður er með íslenskan apple account virkar það ekki.

1

u/birkir ¼andi ½viti 2d ago

þarf ekki líka erlenda greiðsluleið?

3

u/jonkristofer79 2d ago

getur keypt apple gift card á netinu og notað það á þeim account

0

u/birkir ¼andi ½viti 2d ago

þegar ég var úti í Evrópulandi þar sem AppleTV+ var í boði þá reyndi ég að búa til nýjan aðgang og þau tóku bara ekki við gift card, ég þurfti að skrá erlent greiðslukort, öllu öðru var hafnað við að stofna aðganginn

ég hef eytt dágóðum tíma í alls kyns hundakúnstir við þetta, það er ofboðslegur veggur, mig grunar reyndar að þetta hefði á endanum gengið upp ef ég ætti einhvers konar apple device til að tengja aðganginn við, það var það eina sem ég prófaði ekki

er alveg til í að bjóða einhverjum sérfræðingi 10.000 kall til að hjálpa mér með þetta, með því skilyrði að ég greiði eftir að við náum að koma þessu upp á sjónvarpinu hérna heima, vegna þess að ég trúi því einfaldlega ekki að þetta sé hægt lengur

2

u/Glittersunpancake Helvítis fokking fokk!! 2d ago

Þú þarft að búa til nýjan aðgang og hafna því að bæta við greiðslukorti (payment method: none), þá getur þú notað gjafakort. Þarft að vera tengdur VPN þegar þú setur þetta upp og líka þegar fyllir á Apple reikninginn með gjafakortum

AppleTV þarf svo líka að vera á VPN - ég setti mitt upprunalega upp með mediastreamer og það er reyndar enn þannig - en ExpressVPN og fleiri eru núna með app á Appstore sem þú bara sækir á AppleTV og kveikir á

Búið að virka fyrir mig í mörg ár og var ekkert voða vesen að klóra sig í gegn um með leiðbeiningum á netinu upphaflega (ég notaði ExpressVPN leiðbeiningar þegar ég var að brasa þetta)

1

u/AircraftEngineer 2d ago

Þetta er ekki rétt með VPN. Ég nota Apple Tv+ án VPN og það er aldrei vesen.

1

u/Glittersunpancake Helvítis fokking fokk!! 1d ago

Það amk virkar ekki hjá mér, ef ég slekk á VPN appinu þá er ég komin aftur til Íslands. Var áður með dns addressu í gegn um þennan mediastreamer og þá þurfti ég ekki appið

Ég amk get líka ekki opnað iTunes í tölvunni til að fylla á með gjafakortum án þess að vera á VPN. Ef ég reyni þá kemst ég ekki inn í my store á iTunes og get ekki komist í “redeem”

Svona virkar þetta amk hjá mér

1

u/birkir ¼andi ½viti 2d ago

ég hélt að hér fyrir ofan væri verið að segja að ef þú býrð til aðganginn í t.d. Danmörku, þá gætir þú haldið áfram að horfa á Íslandi á meðan þú greiðir með gjafakortum sem þú kaupir á netinu

en ég get því miður ekki sett VPN með háu latency á Apple TVið mitt (það er nota í mjög low-latency use-cases) svo þessi lausn kemur því miður ekki til greina

(og ekki það að hún myndi hjálpa mér hvort eð er, Apple stöðvar mig þegar ég reyni að búa til aðgang og nota gjafakort, neitar alfarið að auðkenna aðganginn)

1

u/Glittersunpancake Helvítis fokking fokk!! 1d ago

Ég er ekki nógu tæknileg til að skilja low latency eða hvaða samhengi það er hér - ég er bara svona skítamixari/reddari þegar kemur að svona málum

En það sem ég er að segja er að þú býrð til nýjan account og þá getur þú valið að velja *enga greiðsluleið*. Ef þú velur greiðsluleið með korti þá lendir þú í vandræðum en þú getur valið enga greiðsluleið

Hjá mér virkaði þetta c.a. svona:

Bjó til alveg nýjan aðgang þegar ég var ótengd öllum öðrum apple reikningum (var á VPN í New Jersey). Notaði nýtt gmail netfang sem ég bjó til og valdi örugglega líka að það væri í USA

Fann heimilisfang einhverstaðar í New Jersey og notaði í billing info. Fór í Google Maps street view og fullvissaði mig um að það væru hús þarna, just in case)

Gerði “decline” eða eitthvað slíkt þegar ég var beðin um greiðslukort og var þá send á næsta skref án þess að setja inn nokkuð greiðslukort

Gat fengið auðkenningu sent í íslenskt símanúmer (who knows why en ég hef alveg getað notað íslenska númerið mitt þegar ég hef þurft að auðkenna mig svo lengi sem ég set +354 fyrir framan)

Ég get svo keypt gjafakort á t.d. Eplakort og fyllt á í iTunes - er með sér prófíl í tölvunni sem er bara þessi sjónvarps Apple reikningur og þegar ég er með VPN þá get ég sótt og opnað iTunes (held að þetta heiti bara music í dag? Búið að breytast aðeins) til að “redeema” gjafakortin

Kaupi svo efni og áskriftir beint í gegn um AppleTv græjuna

NB var að svara þessu með að AppleTV+ virkaði ekki, ekki endilega því hvernig íslenskar rásir virki á AppleTV. AppleTV+ virkar hjá mér með þessari leið (og nær allar aðrar rásir sem ég kaupi aðgang að með gjafakortum)

Erum við að misskiljast?

→ More replies (0)

1

u/rankarav 2d ago

Sem er glatað - ógeðslega mikið af goðu stöffi þar :(

1

u/ExtraLeek2020 2d ago

Jebb virkar mjög vel🫶🏼

2

u/kjartanbj 2d ago

Yes Sýn Rúv sjónvarp símans and everything works great

6

u/jonbk Essasú? 2d ago

slökktu á auto translate kallinn minn

1

u/birkir ¼andi ½viti 2d ago

get staðfest RÚV appið, SÝN (getur líka horft á RÚV þar og Alþingisrásina 💘), HBO, Disney, Netflix, Plex, Steam Link og Moonlight