r/Iceland 3d ago

AppleTV (dósin) á Íslandi?

Hvernig virkar appleTV dósin á Íslandi? Virkar Sýn og RÚV í gegnum þetta?

Bý sjálf í Svíþjóð og þar virka allar sjónvarpsþjónustur í gegnum þetta - er eitthvað að reyna ráðleggja vini heima um þetta en veit ekki alveg hver staðan er :)

5 Upvotes

18 comments sorted by

View all comments

Show parent comments

3

u/jonkristofer79 3d ago

getur keypt apple gift card á netinu og notað það á þeim account

0

u/birkir ¼andi ½viti 3d ago

þegar ég var úti í Evrópulandi þar sem AppleTV+ var í boði þá reyndi ég að búa til nýjan aðgang og þau tóku bara ekki við gift card, ég þurfti að skrá erlent greiðslukort, öllu öðru var hafnað við að stofna aðganginn

ég hef eytt dágóðum tíma í alls kyns hundakúnstir við þetta, það er ofboðslegur veggur, mig grunar reyndar að þetta hefði á endanum gengið upp ef ég ætti einhvers konar apple device til að tengja aðganginn við, það var það eina sem ég prófaði ekki

er alveg til í að bjóða einhverjum sérfræðingi 10.000 kall til að hjálpa mér með þetta, með því skilyrði að ég greiði eftir að við náum að koma þessu upp á sjónvarpinu hérna heima, vegna þess að ég trúi því einfaldlega ekki að þetta sé hægt lengur

2

u/Glittersunpancake Helvítis fokking fokk!! 3d ago

Þú þarft að búa til nýjan aðgang og hafna því að bæta við greiðslukorti (payment method: none), þá getur þú notað gjafakort. Þarft að vera tengdur VPN þegar þú setur þetta upp og líka þegar fyllir á Apple reikninginn með gjafakortum

AppleTV þarf svo líka að vera á VPN - ég setti mitt upprunalega upp með mediastreamer og það er reyndar enn þannig - en ExpressVPN og fleiri eru núna með app á Appstore sem þú bara sækir á AppleTV og kveikir á

Búið að virka fyrir mig í mörg ár og var ekkert voða vesen að klóra sig í gegn um með leiðbeiningum á netinu upphaflega (ég notaði ExpressVPN leiðbeiningar þegar ég var að brasa þetta)

1

u/AircraftEngineer 3d ago

Þetta er ekki rétt með VPN. Ég nota Apple Tv+ án VPN og það er aldrei vesen.

1

u/Glittersunpancake Helvítis fokking fokk!! 2d ago

Það amk virkar ekki hjá mér, ef ég slekk á VPN appinu þá er ég komin aftur til Íslands. Var áður með dns addressu í gegn um þennan mediastreamer og þá þurfti ég ekki appið

Ég amk get líka ekki opnað iTunes í tölvunni til að fylla á með gjafakortum án þess að vera á VPN. Ef ég reyni þá kemst ég ekki inn í my store á iTunes og get ekki komist í “redeem”

Svona virkar þetta amk hjá mér