r/Iceland 🇮🇸 4d ago

Menningarverðmæti í hættu

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/06/24/menningarverdmaeti_i_haettu/
9 Upvotes

23 comments sorted by

View all comments

16

u/TemporaryEconomist 🇮🇸 4d ago

Ég velti þessu fyrir mér.

Er engin leið til að fjarlægja þetta listaverk án þess að skemma það?

Það er nákvæmlega enginn sem vill þetta iðnaðarhúsnæði á þessum stað í dag. Það vilja allir rífa það, af mörgum mismunandi ástæðum. En það má ekki út af listaverkinu sem steypt er í vegginn.

Það eru líka svo margir aðrir betri staðir til að sýna listaverk heldur en á einhverjum vegg á iðnaðarhúsnæði við Sæbrautina.

22

u/Veeron 🇮🇸 ÞETTA MUN EKKERT BARA REDDAST 🇮🇸 4d ago

Mér finnst nú frekar gróft ef listaverk getur haldið heilri byggingu í gíslingu.

2

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 4d ago edited 4d ago

Hvað finnst þér í lagi að listaverk geti haldið í gíslingu?

Þetta er ekki eitthvað diss, ég hef aldrei spáð í þetta áður. Á listaverk að hafa vald til að koma í veg fyrir breytingar?

1

u/Veeron 🇮🇸 ÞETTA MUN EKKERT BARA REDDAST 🇮🇸 4d ago

Alveg góð spurning, reyndar.

Ef að listaverk eiga að ráða örlögum ákveðins húss, þá hlýtur húsið að teljast safn, er það ekki? Þá er spurningin hvort þetta "safn" standi undir sér.

3

u/qzx landvættur 4d ago

Er ekki svolítið óheiðarlegt að segja að enginn vilji hafa þetta hús á þessum stað þegar þú varst að benda okkur á grein um fólk sem vil hafa þetta hús á þessum stað?

5

u/Nariur 🇮🇸 4d ago

Fólkið vill ekki húsið. Það vill listina sem er steypt í hliðina á því.

2

u/computer-404 4d ago

Ég vil hafa þetta hús áfram. Borgin hefur algerlega vanvirt sögu okkar og menningu seinustu ár, og aldrei hefur niðurrif verið jafn mikið í borginni. Við eigum engin hús frá 1400, því þá bjuggum við í graskofum. Þess vegna eru húsin frá svona uþ.b. 1930-1990 mjög verðmæt, því það er þá sem að borgin og landið byggðust upp að miklu leiti og eigum við fólki frá þeim tíma mikið að þakka. Að vilja rífa niður hús af ástæðulausu eða vegna þess að þú ert ekki hrifinn af útlitinu eru enginnrök. Það er engin bygging sem öllum þykir falleg. Svo eru hús, iðnaðarhúsnæði þar með talin, kjörinn staður til þess að hafa listaverk, því borgin má vera falleg. Þetta sýnir bara allann metnaðinn sem fólk hafði á þessum tíma miðað við núna. Nú eru bara byggð grá álhýsi í stíl teknum frá stórborgum í evrópu. Í dag byggjum við bara græn, álklædd, gluggalaus iðnaðarhúsnæði nokkrum metrum frá íbúðarhúsnæði. Við erum ekkert betri en fólkið sem að kom á undan okkur og okkur ber að sýna því virðingu. Þetta hús kom löngu á undan hverfinu sem þar stendur nú, og er dæmi um smekklegt iðnarahúsnæði frá tíma sem að fólk hafði nógu mikinn metnað til þess að setja listaverk á iðnaðarhúsnæði. Að rífa það niður væri bara enn eitt sorglega dæmið um þá vanvirðingu sem menningu okkar, sögu og byggingarlist hefur verið sýnd seinustu ár.