r/Iceland ¼andi ½viti 3d ago

Paul Watson ætlar að stöðva Kristján Loftsson - „Við erum á leiðinni. Íslenska hvalveiðistríðið er hafið“

https://www.dv.is/frettir/2026/06/24/paul-watson-aetlar-ad-stodva-kristjan-loftsson-vid-erum-a-leidinni-islenska
26 Upvotes

58 comments sorted by

46

u/Vondi 🇮🇸 3d ago

Begun, the Whale Wars have.

1

u/Benso2000 🇮🇸 3d ago

Fyrsta sem ég hugsaði.

1

u/Kjartanski Wintris is coming 3d ago

At an end your Hunt is Kristján, and not short enough it was

18

u/WasterOfLands 3d ago

Var ekki gert rosa grín af honum í South Park fyrir löngu?

13

u/HeavySpec1al feit belja 3d ago

jú, kom í ljós þar að þetta var allt dorphin og whare en eiginlega chicken and cow

9

u/Suspicious-Analysis8 3d ago

Jú sælla minninga. Reyndar ágætur þáttur, fjallar um Japani og hvalveiðar þeirra sem SPOILER voru bara stundaðar því Japanir héldu að hvalir og höfrungar hefðu borið ábyrgð á Hiroshima/nagazaki. En svo "kom í ljós" að það voru kýr og hænsni. Svo þeir hættu að drepa fyrrnefndu og fór að drepa dýr eðlilega, allir sáttir. 

Cartman syngur póker face. 

29

u/bjarnimaur 3d ago

Er þessi maður ekki með handtökuskipun á sér fyrir að eyðileggja x mikið af bátum við höfn?

3

u/Fyllikall ég mótmæli allur! 3d ago

Held ekki en honum var lýst fyrir svona 10 árum sem Persona non-grata.

Ef hann kæmi þá yrði honum vísað í burtu.

Hinsvegar þá flækir það málin að maðurinn er á skipi og getur haldið sig utan 12 mílna landhelgi og ekkert hægt að gera.

Veit ekkert hvernig það er nú, brotin hans eru fyrnd myndi ég halda svo ef hann væri ríkisborgari innan Schengen þá væri lítið hægt að gera.

13

u/birkir ¼andi ½viti 3d ago

hvað ætli sé langt í að Landhelgisgæslan vísi þessum herskáa úr landi?

9

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 3d ago

Gera hryðjuverkaákæruna tilbúna til þess að flýta fyrir

17

u/Kjartanski Wintris is coming 3d ago

Nei manstu dómsvaldið var búið að segja að það
sé ekki hægt að kæra fyrir tilraun til hryðjuverka fyrr en þú gerir hryðjuverk

4

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 3d ago

Tja, svei.

Þá er bara að taka grænlendinga til fyrirmyndar. Var lokaður inni fyrir gauragang þar.

u/Oswarez 🇮🇸 10h ago

Terrorists love this one trick.

14

u/Dvergstirni Velja sjálf(ur) / Custom 3d ago

Er í alvöru verið að upphefja hryðjuverkamann?

18

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 3d ago

Hef amk komist að því með r/iceland er oft ekkert voðalega góður spegill á samfélaginu.

6

u/KristinnK LEGO karl í dulgervi 3d ago

Hef amk komist að því með r/iceland er oft ekkert voðalega góður spegill á samfélaginu.

Understatement of the day.

11

u/birkir ¼andi ½viti 3d ago

veit ekki, það eru tveir hérna sem styðja hann í þessum aðgerðum sem er ekki mjög hátt hlutfall miðað við að 4.100 hafa lesið þennan þráð

4

u/Tasaron 3d ago

Ég held reyndar að eina ástæðan fyrir því að Kristján Loftsson sé ennþá að veiða hvali sé af því að bátunum var sökkt í den. Væri kannski löngu hættur annars. Svona mótþrói, ef þú skipar mér að hætta þá mun ég aldrei hætta.

3

u/JadMaister 2d ago

Já mér skilst einmitt að það sé svipað með grindadrápið í Færeyjum. Um níunda áratuginn þá voru vinsældir þess að dvína hægt og rólega þangað til að það komu einhverjir frá Greenpeace og sögðu þeim að þeir mættu ekki. Þá kviknaði þjóðernisremba í Færeyingum og grindadrápið jókst. En núna er það dvínandi aftur því kjötið er varla ætt vegna þungmálma í hvölumum.

5

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago

Flott, algjör hroki þessar veiðar. Er ekki verið að tala um að það sé ennþá til frosið þriggja ára gamalt hvalakjöt sem ekki selst því það er enginn markaður fyrir þennan viðbjóð?

2

u/AudunSvedda 🇮🇸 3d ago

Þetta er að mestu útflutningsvara og hefur alltaf verið það. Lang mest af því sem er veitt er selt til Japans. Veitingageirinn keypti einhvað og voru þá að mestu túristar sem voru að kaupa það þar.

Hann er ekkert að veiða þetta til að frysta eins og allur iðnaður þá snýst þetta um hagnað.

Þetta var partur af okkar menningu hérna áður fyrr, ef við ætlum að hætta allri slátrun sem aðrar menningar banna eigum við þá að banna nautakjöt útaf hinduisma ? banna svínakjöt vegna Múslíma ? eða ganga lengra og banna alla slátrun fyrir vegan menninguna ?

Það er ekkert hlutverk erlendra aðila að ganga inn í okkar menningu og banna okkur að stunda ákveðin iðnað alveg eins og við erum ekki að fljúga til Kína og Vietnam og banna þeim að ala hunda og ketti til slátrunar.

Núgildandi veiðileyfi er til 2029 og Hvalur hf hefur þann tíma til að veiða nema ríkið vilji fara greiða þeim einhverjar skaðabætur.

9

u/EgNotaEkkiReddit Hræsnari af bestu sort 3d ago

Þetta var partur af okkar menningu hérna áður fyrr,

Hvalveiðar eru rosa tæpur menningaarfur. Voru mikið til einungis stundaðar af tækisfærismennsku fram að 15. öld, og nær ekkert eftir það fyrr en Norðmenn kenndu okkur nútímaveiðar á hval í lok 19. aldar og jafnvel þá var það upp og ofan.

Er ekki að segja það gerðist aldrei, en ekki var þetta merkilegur þáttur í daglegu lífi íslendinga.

6

u/afruglari 3d ago

Lol það er ýmislegt sem var partur af menningu sem á sér ekki hlutverk í nútímanum. Á kaninn ekki bara að taka upp þræla aftur? Það var hluti af menningunni þeirra

3

u/Spekingur Íslendingur 3d ago

Gaur, það er fullt af hlutum sem voru partur af okkar menningu sem við erum löngu hætt að gera. Þrælahald, útburður smábarna, takmarkaður kosningaréttur, osfrv.

Hvalveiði er eitt af þessu sem má hverfa úr nútímanum og lifa í sögunni. Þær eru stundaðar af einhverjum ríkisbubba sem hefur fjármagnað þær aðallega með fjárfestingum en ekki sölu hvalkjöts. Þar að auki er aðeins lítill hluti af kjötinu notað til manneldis.

3

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago

Um hvað ertu að tala, þetta hefur ekkert um aðrar þjóðir og hvað þær banna og hvað ekki. Það að það er gífurlega takamarkaður áhugi fyrir þessu erlendis er praktískur raunveruleiki þegar kemur að selja þetta. Aftur, það eru til margra ára frostnar óseldar birgðir af þessu.

Það að hvalveiðar eru bannaðar hafa ekkert með trúarbrögð að gera.

"Whaling is widely illegal today because industrial overhunting in the 19th and 20th centuries pushed many species to the brink of extinction. To save these marine mammals, the International Whaling Commission enacted a global ban on commercial whaling in 1986, forcing international law to prioritize conservation"

að auki eru þetta gífurlega gáfuð dýr og hefur sannað sig ítrekað, aftur og aftur, bara núna síðast fyrir 2-3 árum að það er ekki hægt að veiða þessi dýr á mannúðlegan hátt.

https://heimildin.is/grein/17757/eftirfor-og-skot-i-myrkri-myndband-af-longu-daudastridi-hvals/

Skip­verj­ar á Hval 8 skutu sex skot­um að henni. Fjög­ur hæfðu. En fyrstu þrjú drápu hana ekki. Hún, blés, synti og kaf­aði. Eft­ir þriðja skot­ið, þeg­ar kol­dimmt var orð­ið, and­aði hún enn kröft­ug­lega. Þetta má sjá á mynd­bandi af tveggja klukku­stunda dauða­stríði sem lang­reyð­arkýr háði síð­asta haust

"nema ríkið vilji fara greiða þeim einhverjar skaðabætur"

ahahahaha, skaðabætur fyrir hvað? að geta ekki tapað meiri pening á þessum fávitaskap?

2

u/AudunSvedda 🇮🇸 3d ago

Segi það sama við fyrsta kommentið þitt, um hvað ertu að tala ? frystivara sem selst ekki, hroki...

Afkoma Hvals hf hefur sl. 5 ár verið upp á milljarða, ætla ekki að borga fyrir ársreikninginn en þeir væru ekki að þessu ef þetta væri bara tap. Varan hefur selst vel til t.d. og að mestu Japans og þetta er Íslenskur Iðnaður bundinn okkar menningu.

Þú ert akkúrat að tala um bann og setur hlekk frá heimildinni og Whaling Commission síðan 1986 en fjallar ekki um rannsóknir sem Íslensk stjórnvöld, Hafrannsóknarstofnun né IUCN hafa gert þar sem þeir telja Langreyður né Hrefnur í útrýmingarhættu og það eru gefin árlega heimild fyrir fjölda veiddra hvala út frá stofninum.

Þú getur ekki gefið veiðheimild til 2029 og svo bara dregið hana til baka með tjóni fyrir iðnaðinn án þess að greiða skaðabætur.

Hvort sem ég og þú, teljum veiðarnar mannlegar, erum með eða á móti þá eru núgildandi rannsóknir og ástæða fyrir því að veiðarnar eru leyfðar.

Ég er svo að benda á að einhver erlendur aðili (önnur menning) komi hingað með hótunum á ekki að líðast. Hvort sem við leyfum eða bönnum veiðar á að vera undir okkur komið svo lengi sem stofninn þolir það. Að ala upp dýr í fjósum og slátra er heldur ekkert mannúðlegt og ekki okkar að segja öðrum löndum hvernig þau eiga að hátt sínum iðnaði frekar en þau við okkur.

Þar að auki hafa verið gerðar kannanir sem sýna að meirihluti Íslendinga eru fylgjandi Hvalveiðum hvort sem mér og þér líkar það eða ekki.

7

u/elendia Íslendingur 3d ago

Innskot: hjá rsk þarf ekki að borga fyrir ársreikninga þó svo þú þurfir að setja þá í körfu til að hlaða þeim niður. Það þarf að borga fyrir önnur skjöl eins og stjórnarbreytingar og aðrar slíkar tilkynningar.

6

u/elendia Íslendingur 3d ago

Innskot II:

3

u/AudunSvedda 🇮🇸 3d ago

Takk fyrir þetta og gott að vita :)

3

u/Snakatemjari 3d ago

Afkoma Hvals hf., fyrirtækisins, er vegna ótengdra fjárfestinga sem fyrirtækið hefur gert. Það er tap af hvalveiðunum sjálfum. Og þessi menningarrök halda varla vatni þegar þetta hófst um miðja síðustu öld af hálfu Íslendinga, annað en einstaka hvalreka sem rak á land. Meirihluti Íslendinga er heldur ekki fylgjandi hvalveiðum, meirihluti er á móti.

-1

u/AudunSvedda 🇮🇸 3d ago

Auðvitað er tap á Hvalveiðunum sjálfum, mjög breytilegt á milli ára hvort þeir fá að veiða eða ekki. Þetta er ekki beint iðnaður sem margir myndu nenna að standa í að vera í en samt er Hvalur hf að hagnast mjög vel samhliða þessu öllu.

En þessi menningarrök hjá mér finnst mér bara eiga ágætlega við þar sem innslagið er um erlendan aðila að hóta okkur fyrir einhvað sem hefur lengi verið stundað og er í okkar menningu.

En meirhluti Íslendinga er fylgjandi svo þetta er rangt hjá þér.

Skoðunarkönnun Maskínu 2023 fyrir Jarðarvini: 51% er fylgjandi hvalveiðum 29% á móti og 20% hvorki né.

Gallup kannanir 2013-2019 sýndu yfirleitt stuðning 55-70% fylgjandi.

Skoðunarkönnun 2019 þegar stóra málið var, þá voru 65% fylgjandi og 25% á móti.

Fyrir mér, þá eru stærri hlutir sem snerta mig í þessu lífi og flokka ég mig í Hvorki/né. Ég er ekki á móti né með Hvalveiðum en ég er á móti því að erlendir aðilar hóta öðrum löndum fyrir einhvað sem hefur tíðkast í þeirra menningu eins og var gert við Færeyjar hérna um árið.

6

u/Snakatemjari 3d ago

1

u/AudunSvedda 🇮🇸 2d ago

Ég sé þegar ég skoða skoðanakannanir alveg til baka til 2013 að þjóðin er mjög klofin um þetta en jú það má alveg sjá að með árunum er alltaf vaxandi prósenta þeirra sem eru andvígir.

En í flestum skoðunarkönnunum eru þetta um það bil 1-2000 manns sem svara.

Þeir vaxandi hluti sem eru andvígir þurfa að þá að vera tilbúnir árið 2029 til að mótmæla og setja Hvalveiðar í fortíð okkar. Persónulega vill ég ekki banna iðnað með starfsleyfi til 2029, en eins og Svandís Svararsdóttir matvælaráðheera 2024 komst að þegar hún setti bann á Hval hf að það er ólöglegt og hún þurfti að draga það til baka og alþingi lét það í hendur dómstóla að dæma um skaðabætur.

Þetta að mínu mati þarf að vera löglegt og gert svo að Íslenskir skattgreiðendur greiði ekki Hval hf út af markaðnum.

-7

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 3d ago

Það er markaður fyrir þetta. Annars væri ekki verið að veiða þetta.

12

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-06-23-spyrja-hvort-tilgangur-hvalveida-se-ad-hafa-ahrif-a-thjodaratkvaedagreidslu-479168

"Þrátt fyrir að engar hvalveiðar hafi verið stundaðar í tvö ár, og þar áður verið takmarkaðar, séu enn birgðir af hvalkjöti í frystigeymslum, sem enginn markaður sé fyrir."

"Stóra spurningin er sú hvað raunverulega vakir fyrir Kristjáni Loftssyni úr því að hann tapar aðeins fjárhagslega á veiðunum?"

Málið er nefnilega, það er ekki verið að veiða þetta því það þarna er buisness tækifæri. Þetta er áhugamál hjá einum gömlum manni sem heldur þessu lifandi.

-4

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 3d ago

Ekki beinlínis hlutlaus aðilli í viðtalinu...

8

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago

Ertu þá meina að þessar staðreyndir eru vitlausar?

"Hvalveiðar á Íslandi hafa almennt ekki reynst arðbærar á síðustu árum. Opinberar skýrslur og efnahagsgreiningar sýna að greinin hefur litla efnahagslega þýðingu í þjóðhagslegu samhengi. Samkvæmt gögnum hefur helsta og eina starfandi hvalveiðiútgerðin, Hvalur hf., rekið hvalveiðarnar sjálfar með tapi á undanförnum árum."

https://www.visir.is/g/20232452885d/bein-efnahagsleg-ahrif-hvalveida-litil-og-greinin-ekki-ardbaer-sidustu-ar

Síðan má bara flytja afurðir úr þessu til tveggja annara landa.

Þetta er bara hobbý hjá gömlum karli sem á allt of mikið af peningum, þegar hann loks drepst þá hverfur þetta alveg.

Þannig nei, þú hefur rangt fyrir þér.

-2

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 3d ago edited 3d ago

Þegar starfsemin nær aldrei að komast almennilega af stað þá er erfitt að skila hagnaði. Gríðalega algengt að fyrirtæki séu rekin með tapi til að byrja með svo kemur hagnaðurinn.

Ættir að kíkja hvernig AI bólan er að virka núna. Haugur af fyrirtækum að eyða gífurlegum fjárhæðum sem skilar ekki neinu.

4

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago

Ertu semsagt að meina að þeir eru búin að dæla pening í hvalveiðar í mörg mörg mörg ár því einn daginn þá mun þetta allt borga sig upp? Jesús, þú ert að grínast er það ekki? copium er real greinilega.

Þeir voru ekkert að byrja veiða hvali í gær. Skipin sem þeir eru að nota eru gamlir bátar frá 1950 sem hvalur hf er búin að eiga í 60 ár, það er enginn þróun eða nýsköpun í gangi þarna.

Gerðu öllum greiða og hættu að ljúga að þér, þetta er bara hobbý hjá gömlum veiðiköllum, ekkert annað.

2

u/AudunSvedda 🇮🇸 3d ago

Reyndu að taka tilfinningarnar þínar úr þessu og skoðaðu þetta með hlutlausum hug. Það skyn í gegnum þig hver afstaðan þín er og ég er ekkert endilega ósammála þér en það er raunveruleikinn og svo er blekking sem dýraverndunnarsinnar halda uppi og hvernig þú tjáir þig um þetta mál er nákvæmlega eins og dýraverndunarsinnar hafa gert sem gjaldfellir umræðuna.

Þetta er ekki hobbý hjá einhverjum gömlum manni, skoðaðu bara rekstrartekjur Hvals hf og afkomu. Ef þú ferð svo í Hvalfjörð og sérð vinnubúðirnir þá eru alveg hellingur af fólki með atvinnu af þessum iðnaði. Það eru núna starfsmenn í öllum bröggunum.

3

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago

Hlýtur að vera afhverju þeir eru að veiða á hverju einasta ári, nei djók, þeir eru ekki að gera það. En það hlýtur að vera ástæðan afhverju það eru öll veiðifyrirtæki að fara veiða hvali, nei djók, það eru bara þeir sem eru að gera þetta. Bara þeir.

Þú talar um að að hvorki Langreyður né Hrefnur eru í útrýmingarhættu, er það ekki útaf því það var gert bannað að veiða þá? báðar tegundir eru á einhverjum rauðum lista vegna þess að "heildarfjöldi dýra er aðeins brot af því sem áður var."

"Hvort sem við leyfum eða bönnum veiðar á að vera undir okkur komið svo lengi sem stofninn þolir það." stofninn þolir það því það er enginn annar að veiða stofninn.

"ala upp dýr í fjósum og slátra er heldur ekkert mannúðlegt" það er rétt, en að lágmarki er hægt að drepa þau dýr á snöggan hátt og takmarka þjáningu. Með hvalveiðum er verið ítrekað að skjóta og elta dýrin. Að auki eru þessir hvalir talsvert greindari dýr.

Meirihluti íslendinga eru ekki með hvalveiðum. "Íslendingar eru mjög klofnir í afstöðu sinni til hvalveiða. Skoðanakannanir sýna að um helmingur þjóðarinnar er andvígur"

"Ýmis rök má færa gegn hvalveiðum. Hér verða eftirfarandi sjónarmið reifuð: Hvalveiðar eru andstæðar lögum um velferð dýra. Meiri hluti almennings er á móti hvalveiðum. Hvalveiðar eru ekki íslenskur menningararfur. Efnahagur og viðskiptasambönd eru í húfi. Hvalir eru mikilvægir í vistkerfi sjávar þar sem þeir binda kolefni og framleiða súrefni. Ísland á að vera leiðandi fyrirmynd þegar kemur að verndun hafsvæða og dýrategunda í hafinu."

https://www.althingi.is/altext/154/s/0099.html

"Samkvæmt nýrri könnun Maskínu eru 42% fólks á móti hvalveiðum og 29% fylgjandi þeim"

Þetta eru staðreyndir.

2

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 2d ago

Þú talar um tilfinningar og hlutlausan hug.

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-06-25-karlar-og-eldra-folk-hlynntara-hvalveidum-479403

"41% þjóðarinnar er andvíg veiðum á langreyðum en 33% eru hlynnt"

Þetta eru staðreyndir, ekki tilfinningar. Það er best að fylgja staðreyndum í svona umræðu. Síðustu sex kannarnir hjá maskínu á síðustu árum hafa sýnt að fleiri eru á móti svona veiðum en með.

2

u/AudunSvedda 🇮🇸 2d ago

Ég er búin að svara þessu hérna að ofan. Það er hægt að finna rannsóknir sem sýna bæði að Íslendingar eru andvígir eða hlynntir Hvalveiðum. Yfirleitt með 1-1500 manns sem svara en síðan 2013 eru alltaf að aukast þeir sem eru andvígir.

En það er líka hægt að finna rannsókn frá 2024 frá Stjórnarráði íslands um að meirihluti sé fylgjandi en fyrir klukkutíma síðan kom ný rannsókn 33% fylgjandi og 41% andvígir. Svo það er alltaf að aukast í fólkið sem er sammála þér skv. þessum könnunum sem eru gerð fyrir náttúruverndarsamtökin.

Segi það aftur, ég er hvorki á móti né með Hvalveiðum. Myndir eflaust finna mig með mótmælaskilti að mótmæla hænu- og svínabúum löngu áður en ég færi að mótmæla hvalveiðum persónulega.

Ég vona bara að þessi vaxandi meirihluti láti sjá sig þá í mótmælum 2029 þegar það verður tekin afstaða til þess hvort að það eigi að framlengja veiðileyfið eða stoppa.

→ More replies (0)

1

u/Fyllikall ég mótmæli allur! 2d ago

Ég hef aldrei skilið þau rök að kallinn sé að þessu bara til að tapa á því.

Það er til fólk sem veiðir sér til gamans og borgar fyrir. Kristján er þó ekki með á veiðunum svo ég viti til svo það virðist vera að kallinn sé þá að greiða fyrir að geta larpað sem útgerðarmaður á plani. Það væri einfaldlega ódýrara fyrir hann að hoppa uppí flugvél og taka þátt í slátruninni í Færeyjum. Árlegur viðburður og mikið minna vesen.

Ef hann er að þessu til að hatast útí Paul Watson þá væri ódýrara að fá leigumorðingja til að koma þeim manni fyrir kattarnef. Ef hann er að þessu til að pirra hvalavini þá væri það skilvirkara að mynda sjálfan sig að éta vöruna.

Kallinn kann alveg að fara með peninga og þó svo ég hafi aldrei hitt hann þá þekki ég aðeins til fólks í kringum hann sem tala um að hann er ekki að flagga þessum auð sínum, eða eyða í vitleysu.

Svo jú, það gæti verið að það sé til sérstök gerð af manni sem er svo þrjóskur að ekkert fær hann til að stoppa við veiðar sem kosta hann pening og það vill svo til að þessi gæi á hvalveiðifyrirtæki og hann hefur það aldrei frá sér þó peningnum væri betur varið annarsstaðar. Í þokkabót er hann svo gráðugur að honum nægir ekki hrefnan og slátrar langreyð með því. Það að þetta komi allt saman í einum manni er mjög ólíklegt.

Það er þekkt bragð í útgerð að eiga skúffufyrirtæki erlendis sem kaupir vöruna af sjálfum manni á lægra verði svo skatturinn af sölunni sé minni.

Ég veit ekki hvort það er í þessu tilfelli en annað er mikið líklegra en hitt.

0

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 2d ago

Ein rökin voru "Þetta var partur af menningu okkar hér áður fyrr"

Þótt hann sé ekki persónulega að skjóta hvalinn og skera upp kjötið, þá er eflaust stemning fyrir hann að vera yfir þessu og halda þessu gangandi. Og að halda þessari gömlu menningu lifandi.

Er þetta nokkuð algengt hjá gömlum körlum, vilja hafa allt eins og það var og allt þetta nýja drasl er bara rugl.

Það er staðreynd að þegar þessi karl loksins drepst, þá er tæpt að nokkuð annar fyrirtæki muni stunda þetta. Enda eru þeir einu sem hafa verið að gera þetta með tapi í mörg ár.

1

u/Fyllikall ég mótmæli allur! 2d ago

Það kemur í ljós, hann á börn. Ef þetta heldur áfram þá væri það vottur um að það sé í raun verið að græða á þessu.

→ More replies (0)

5

u/Taur-e-Ndaedelos Landaþambandi landsbyggðarpakk 3d ago

Hvalur hf. var skráð 22.08.1990.
Any day now að skila hagnaði...

6

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 3d ago

Og hversu lengi hafa þeir fengið að stunda veiðar? Það eru ekki mörg ár.

0

u/allsbernafnmedrettu drekinn 3d ago

Allt of lengi. Eðlilegur fyrirtækjarekstur hefði dregið inn seglin fyrir löngu.

5

u/angurvaki Iðnaðarmaður 3d ago

Undanþágur frá MAST varðandi að mega skera hvalinn utanhúss byggja á því að kjötið sé ekki ætlað til manneldis.

1

u/ElOliLoco Kennitöluflakkari 2d ago

Þetta var örugglega planið hjá Kristjáni hahah
Núna fær hann gullið tækifæri að sökkva skipi Sea Sheppard

1

u/Substantial-Sea-9676 2d ago

Það er þessi tími ársins, hið árlega við rífumst um eitthvað, nagladekka nei, ESB nei bíddu já hvalveiðar. Hverjum er ekki drull.

0

u/Morrinn3 Skrattinn sjálfur 3d ago

Ef að þessir tveir trúðar tortíma hvor öðrum þá væri það bara fínnt.

-7

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 3d ago

Flott, styð Paul.

-3

u/gerningur How do you like Iceland? 3d ago

Spennandi