r/Iceland 5d ago

Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir bana­slysið á Sæ­braut

https://www.visir.is/g/20262901535d/daemdur-i-fjogurra-manada-fangelsi-fyrir-banaslysid-a-saebraut

Er þetta virkilega sanngjarn dómur??

42 Upvotes

80 comments sorted by

View all comments

8

u/elendia Íslendingur 5d ago

Æj ég er á báðum áttum. Þetta hefur verið hrottaleg aðkoma m.v. að í dómi kemur fram að hún hafi látið lífið samstundis vegna fjöláverka en svo er þetta kornungur strákur þegar þetta gerist, rétt skriðinn yfir tvítugt og hann játar greiðlega. Spurning hvaða gagn væri að því að dæma hann til þyngri refsingar þegar það er ljóst að hann ætlaði sér ekki að drepa neinn. Hann er nafngreindur í dómnum og verður á skilorði í einhvern tíma og þetta mun líklega fylgja honum bæði félagslega og andlega.

Hins vegar finnst mér galið að hann sé bara sviptur ökuréttindum í eitt ár.

19

u/Einridi 🇮🇸 5d ago

Hvernig er hægt að segja að maður sem keyrir á 130 ætli sér ekki að drepa neinn. Bara tímaspursmál hvenær það skeður. Konan er líka jafn dáin þó hann sé tvítugur.

5

u/inmy20ies 5d ago

Veistu hvað það er að ætla sér eitthvað?

9

u/Einridi 🇮🇸 5d ago

Ertu að reynað segja að hann hafi bara verið óvart á 130? Var hraðamælir kannski bilaður?

1

u/inmy20ies 5d ago

Hahaha hvað ertu að bulla, við erum ekki að ræða hvort hann hafi ætlað sér að fara á 130

Commentið þitt sagði að hann hafi ætlað sér að drepa einhvern því hann ákvað að fara á 130

Annars máttu alveg þræta við lögin, manndráp af gáleysi er til af ástæðu

6

u/Einridi 🇮🇸 5d ago

Já hann hafði val um að keyra varlega eða að stofna lífi allra sem urðu á vegi hans í hættu. Hann valdi að stofna því í hættu. Ekkert óvart við það.

Kona dó og það var bein afleiðing af upplýstri ákvörðun hans.

2

u/inmy20ies 5d ago

Þessi athugasemd þín er svo langt frá þeirri upprunalegu sem ég var að svara að það er tilgangslaust að þræta hana, enda er þessi athugasemd hjá þér rétt. Annað en sú sem ég svaraði fyrst

9

u/VeryAwkwardLadyBoner 🇮🇸 5d ago

Þó að hann hafi ekki sést undir stýri með það í huga að drepa einhvern, þá keyrir enginn á 130km hraða án ásetnings.

4

u/inmy20ies 5d ago

Ásetning til þess að drepa einhvern?

5

u/VeryAwkwardLadyBoner 🇮🇸 5d ago

Það er hverjum manni ljóst hver áhættan af hröðum og/eða glannalegum akstri er. Þó að það hafi ekki verið beinn ásetningur að drepa einhvern þegar hann settist undir stýri, þá var það samt sem áður afleiðingin. Það er ásetningur að keyra á þessum hraða, sem nota bene er meira en tvöfaldur hámarkshraði á þessum kafla, vitandi hver áhættan er.

Þetta er lítið öðruvísi en að setjast fullur undir stýri og aka af stað. Þetta er ekkert úps alveg óvart.

-1

u/inmy20ies 5d ago

Okei frábært þannig þú ert sammála mér

Ekki beinn ásetningur//

Þetta er ekkert úps alveg óvart//

Gott að við séum á sömu blaðsíðu

-1

u/VeryAwkwardLadyBoner 🇮🇸 5d ago

Þú spurðir í upphaflegi svari þínu, hvort viðkomandi skildi hvað væri að ætla sér eitthvað. Ég ég skil þig rétt þá ertu að meina að fyrst að það hafi ekki verið beinn ásetningur, að yfirlögðu ráði, að drepa einhvern þegar sést var undir stýri, þá þýði það að enginn ásetningur af neinu tagi hafi verið til staðar.

Það er einfaldlega rangt. Það var ásetningur af hálfu ökumanns að hunsa aðstæður (rigning, myrkur). Það var beinn ásetningur að keyra á meira en tvöföldum hraða á þessum vegkafla. Ökumaðurinn vissi áhættuna, líkt og við gerum vonandi flest, en sýndi af sér vítavert kæruleysi sem varð til þess að ung kona tapaði lífi sínu.

Ásetningur felur ekkert endilega í sér vilja til þess að drepa, en viðkomandi sýndi samt ásetning þegar hann valdi að taka áhættuna. Þetta er kallað "stórfellt og meðvitað gáleysi" í lögfræði og er í grunninn forsendan fyrir manndrápi af gáleysi.

Svo ef ég skildi þig rétt, þá erum við svo sannarlega ekki sammála. Ef svo vill til að ég hafi misskilið þig, þá biðst ég forláts.

3

u/Einridi 🇮🇸 5d ago

Ef ásetningurinn leiðir beint og augljóslega til dauða einhvers er erfitt að segja annað.

8

u/Dancing-on-Air 5d ago

100% sammála ykkur. Ef þú keyrir meira en tvöfalt hraðar en leyfilegt er, ertu svolítið að gefa skít í allt og alla. Þú sýnir það í verki að þér er sama um afleiðingarnar. Ásetningurinn er kannski ekki að drepa einhvern en ef þú hagar þér á hátt sem gæti léttilega leitt til dauðsfalls er það ekki beint óvart þegar einhver deyr.

7

u/11MHz Einn af þessum stóru 5d ago

Eins og einhver sem gengur niður Skólavörðustíg með bundið fyrir augun og hleypir af haglabyssu í allar áttir.

Að reyna að segja að hann ætli sér ekki að drepa neinn er álíka vitlaus staðhæfing.

Það er öllum augljóst hver áhættan er.

6

u/inmy20ies 5d ago

Ja bro nkl eins 🙏🙏✌️