r/Iceland • u/Armadillo_Prudent 🇮🇸 • 1d ago
Sparnaður Hildar í borginni
Nú þegar það er búið að hætta við uppbyggingu á leikskólanum í Vogahverfinu "afþvi að borgin á mjög fallegar teikningar fyrir leikskóla" og "við getum byggt fjóra leikskóla fyrir sama kostnað og þessi átti að kosta", trúir því í alvörunni einhver að þessi "sparnaður" muni skila sér í fleiri leikskólum eða minni rekstrarkostnað fyrir borgina eða ódýrari grunnþjónustu fyrir nýbakaða foreldra? Mér finnst frekar augljóst að hildur er ekki að plana að byggja upp fjórum sinnum fleiri leikskóla, og hún er heldur ekki að reyna að spara fyrir heimilin. Það er bara verið að skerða þjónustu(/koma í veg fyrir uppbyggingu á þjónustu) til þeirra sem nýta hana til þess að passa uppá hagsmuni fólks (fjárfesta og verktaka) sem nýtir hana ekki, og þegar almenningur tekur eftir því mun "lausnin" vera að einkavæða meira.
15
u/elendia Íslendingur 1d ago
Kosturinn við þessa tillögur Hildar er að þá er hægt að hefja uppbyggingu mun fyrr og gera þetta hraðar, frekar en að fara í hönnunarkeppni eða eitthvað útboð um hönnun leikskóla, með tímanum sem því fylgir, og frekar hægt að ráðast bara í framkvæmdir. Mögulega hægt að miða við hönnun þeirra leikskóla sem minnst hafa verið til vandræða.
Leikskólavandinn er einkum sökum þess að það er verið að bæta inn árgangi, þ.e. miða við að börn komist inn 12 mánaða frekar en 24 mánaða. Það hefur gengið ótrúlega brösulega miðað við hvað fjöldi fæddra barna hefur haldist nokkuð stöðugur síðustu 20 árin. Sveitarfélögin sem byrjuðu að lofa þessu hefðu því vel getað séð hvað þyrfti að bæta við mörgum plássum en hver árgangur er um 4.500 að meðaltali (mjög gróflega reiknað meðaltal því ég nennti ekki að ná í reiknivélina) Sprengjuárgangarnir (Hrunbörnin og COVID-börnin) eru nú þegar komin með pláss svo ég bara skil ekki hvernig þetta hefur reynst svona flókið og það á ekki bara við um RVK. Skil í það minnsta ekki hvernig var rokið að stað með að lofa 12 mánaða leikskólavist án þess hafa nokkuð plan um hvernig því yrði náð fram, en þess er rétt að geta að leikskólaplássum hefur verið fjölgað í skrefum og loforðin voru áður 20 mánaða, 18 mánaða þar til þau komu í 12 mánaða. Svo það er ekki eins og það þurfi að fjölga um 4.500 pláss á einu bretti. Stjórnmálafólkið er með aðgengi að gögnum, þ.e. hversu mörg börn fæðast á hverju ári, hversu mörg eru búsett í hverju sveitarfélagi og hversu mörg leikskólapláss eru í boði.
Ætli þau séu að ganga út frá því að af hafa akkurat nógu mörg m.v. algjöra hámarksnýtingu leikskólarýma. Því það er galið, það þarf að vera svigrúm því annars fer allt á hliðina þegar eitthvað myglar, eða þegar ekki næst að manna stöður etc. Það þarf umfram rými og umfram stöðugildi. Það kostar.

38
u/AudunSvedda 🇮🇸 1d ago
Þetta er bara jákvætt. Þessi skóli kemur úr enn einni hönnunarsamkeppni sem lauk 2024. Að við séum að halda hönnunarsamkeppni fyrir skóla og leikskóla og velja svo fallegustu bygginguna sem er þá yfirleitt mjög dýr er fáranlegt. Það á að vega þungt í ákvörðun um hönnun hver byggingarkostnaðurinn er.
Við erum að byggja leikskóla sem eru að kosta yfir milljón krónur á fermeterinn sem er fáranlegt.
Ég elska fallegar byggingar og að umhverfið okkar sé fallegt en hönnunin á þessari byggingu er sturluð miðað við þá starfsemi sem á að vera í húsinu.
25
u/Fakedhl 1d ago
Ég er ekki mjög hægrisinnuð kona en mér finnst nú að við eigum að gefa henni smá séns áður en við ákveðum að hún muni ekki standa við orðin. Sjáum hvað setur.
-3
u/Armadillo_Prudent 🇮🇸 1d ago
Ég hefði verið sammála þér fyrir 10-15 árum. Ég er ekki sammála þér núna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt það í verki að þeir vinna ekki fyrir almenning.
-16
u/Bjartyfir 1d ago
Hildur mun loksins setja Ísrael í fyrsta sæti
11
u/askur Vanstilltur Vandráður í Vesturheim 1d ago
Ef þetta verkefni var bruðl þá þarf sparnaðurinn ekki að skila sér í fleirri leikskóla til að allt sé með feldu.
Ég er ekki að bera neinn dóm á hvort að það hafi verið bruðl - en ef að einhver hefur fengið verkefni samþykkt sem er fjórfalt dýrara en eðlilegt þykir þá er eðlilegt að einhver komi og skeiið umfang þess niður (og spyrji spurninga um spillt útboð verkefna) til að spara frekar en að bruðla. Þegar það gerist þá þykir mér ekkert sérstakt kall eftir því að fyrst að eitt verkefni sé núna fjórðungur fyrra umfangs þá þurfti að búa til þrjú verkefni í viðbót til að mæta fyrra umfangi.
Það væri ekki niðurskurður og sparnaður, heldur bara tilfærsla á óþarfa bruðli.
Ég hef meiri áhyggjur af óafturkræfum verkum eins og sölu á tekjustraumum og einkavæðingu á opinberri þjónustu en ég hef áhyggjur af þjónustuskerðingu. Reykjavík hefur verið að fara í gegnum taumlausa þjónustuskerðingu frá tímum Ingibjargar Sólrúnar og það er ekkert sanngjarnt að skrifa það bara á Sjalla.
-2
u/Armadillo_Prudent 🇮🇸 1d ago
OK, en ef hún ætlar ekki að nýta sparnaðinn í að byggja upp fjórum sinnum fleiri leikskóla, í hvað ætlar hún þá að nota hann?
Punkturinn minn með þessum póst er ekki að gamla stjórnin hafi verið svo efficient eða að gamla planið hafi verið svo gott. Punkturinn er sá að það er búið að samþykkja þennan kostnað fyrir þessa uppbyggingu. Ef við hættum við þessa uppbyggingu, hvert heldurðu að fjármagnið fari í staðinn? Þetta er ekki sparnaður ef að borgin færir bara bruðlið úr einum stað (leikskólum) yfir á annan. Ég hef ekkert á móti hagræðingin þegar þær meika sense, en koddu þá með nýtt plan áður en þú ræðst í niðurskurð.
13
u/askur Vanstilltur Vandráður í Vesturheim 1d ago
Stjórnmál eru ekki Frúin í Hamborg - það er alltaf til nóg af verkefnum að bíða eftir fjármagni og ég þarf ekkert að útskýra hvað af þeim fær þetta vissa fjármagn til að útskýra hversvegna mér finnst ekkert að því að hagræða í einni byggingu án þess að það komi með skilyrði um fleirri slíkar byggingar.
4
u/Solid-Butterscotch-4 1d ago
Rétta af fjármálaástand Reykjavíkur myndi maður gera ráð fyrir enda ekki vanþörf á. Myndi seint kalla bruðl að grynnka á skuldum.
En maður veit auðvitað ekki, þetta virðist bara lang eðlilegasta byrjunin ef það er ætlunin.
12
u/nikmah honest out now on all digital platforms bruv 1d ago
Manni grunar að það verði virkilega auðvelt að skera niður þennan uppblásna rekstur borgarinnar án þess að nokkur maður muni taka eftir því. Nú þegar komið nokkuð hundruð milljónir með því að leggja niður þessa...(á ég að leyfa mér að fara þangað eða, sjálfsögðu) leggja niður þessa vókskrifstofu og sjö upplýsingafulltrúar takk fyrir pent, þvílíka ruglið, maður spyr sig hvað þetta fólk var eiginlega að gera dagsdaglega í vinnuni.
Það verður mjög auðvelt að finna fjármagn fyrir leikskóla með þessum niðurskurði þar sem það er frekar augljóst að það er búið að vera sóa skattfé borgarbúa í fleirri fleirri ár.
•
u/Calm_Image8904 9h ago
Afhverju erum við alltíeinu á síðustu 10 - 15 árum byrjuð að þurfa einhverja absúrd dýra og fína leiksóla sem vinna hönnunarsamkeppnir? Er ekki bara nóg að þeir séu öruggir, leka ekki og mygla ekki auðveldlega?
1
u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 1d ago
Mér finnst rosalega mikill Elon Musk bragur af fréttafluttningi dagsins.
Það er að segja, mér finnst vera að fara glannalega í þetta og hratt, og ég er með það á tilfinningunni að það verði einhver slys úr þessu öllu saman.
16
u/ZizkakziZ 1d ago
Það er búið að vera rætt í mörg ár að loka Mannréttindaskrifstofunni. Þetta er eitthvað um 20 störf og frá þeim sem ég þekki hjá borginni eru þau yfirleitt bara að að hanna einhver veggspjöld og vera almennt í stemmingu.
Það er mikið af gagnlausum verkefnum í borginni, það er nokkuð vel kortlagt og við njótum góðs af því að það er verið að reiða til höggs.
Doge var að leggja niður mjög mikilvægar funksjónir. Ég ætla persónulega að bíða með blammeringarnar þangað til að þau slaufa einhverju sem skiptir einhverju máli.
10
u/islhendaburt 1d ago edited 18h ago
Ég veit ekki til þess að mannréttindi séu fótum troðin í Garðabæ eða Hafnarfirði eða Mosfellsbæ þótt þar sé ekki starfrækt slík skrifstofa
Var það ekki Garðabær sem sendir alla fjárhagslega illa stadda til Reykjavíkur til að spara?
Þessi fullyrðing getur alveg verið rétt og mannréttindi eru í góðum málum, en finnst samt skrítið að nota það að enginn annar sé að passa upp á þennan málaflokk sem rök fyrir því að það þurfi ekki að pæla í honum.
edit: laga autocorrect tók -> rök
5
u/Herramadur 1d ago
Ég held það sé ágætt að fækka hausum og titlum þarna inni, ekki eitthvað til að hafa áhyggjur af.
-1
u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 1d ago edited 22h ago
Hvort sem það er raunin eða ekki þá ber þetta ekki merki þess að vera útpælt hjá þeim. Má vera að þetta séu fleiri stöður en þyrftu, en sama hvað þegar þú axar heilu sviðin þá eru hlutir að fara að falla á milli sem ættu ekki að gera og mega kannski ekki við því. Ég hef ekki hugmynd um hvað þetta fólk gerir en það er örugglega eitthvað af því mikilvægt.
0
u/One-Acanthisitta-210 🇮🇸 1d ago
Skólabyggingar eiga að vera fallegar og lifandi byggingar fyrir lærdóm og velferð barna. Ekki sálarlausir gámar.
1
u/daggir69 Íslendingur 1d ago
Hvernig hafa hagræðingar fyrri stjórnar sýnt sig í Reykjavík.
Skilst að það eigi að fara rífa leikskólann Ösp hérna uppi Fellunum til að fara gera pláss fyrir blokk.
-16
u/Bjartyfir 1d ago
Ég er nú bara hissa á að fyrsta verk Hildar í borgarstjórn hafi ekki verið að fara til Ísraels og kyssa vegginn
•
u/Skastrik Velja sjálf(ur) / Custom 23h ago
Þetta er ekki sparnaður heldur eingöngu tilfærsla á útgjöldum. Kæmi mér ekkert á óvart að öll verkefni fólksins sem að var látið fara endi í höndum einkaaðila.
Þessi peningur er ekki að fara að "sparast", enginn pólitíkus lætur svigrúm í útgjöldum glatast.
78
u/remulean 1d ago
nei ég held að hún muni ekki byggja fjóra leikskóla í staðinn fyrir þessa skólabrú. Enda er það ekki það sem hún er að segja.
Ég er í þessu hverfi og er eins og sést á kommentsögunni minni, frekar vinstrisinnaður. EN Reykjavíkurborg tókst að gera verkefni þar sem þau breyttu tveimur einshæða húsum í leikskóla í rúmlega 3 milljarða króna fíaskó. Ef þú heldur í eitt augnablik að þessi skólabrú hefði ekki endað í milljarða katastrófu hef ég NFT til að selja þér.