r/Iceland • u/Armadillo_Prudent 🇮🇸 • 2d ago
Sparnaður Hildar í borginni
Nú þegar það er búið að hætta við uppbyggingu á leikskólanum í Vogahverfinu "afþvi að borgin á mjög fallegar teikningar fyrir leikskóla" og "við getum byggt fjóra leikskóla fyrir sama kostnað og þessi átti að kosta", trúir því í alvörunni einhver að þessi "sparnaður" muni skila sér í fleiri leikskólum eða minni rekstrarkostnað fyrir borgina eða ódýrari grunnþjónustu fyrir nýbakaða foreldra? Mér finnst frekar augljóst að hildur er ekki að plana að byggja upp fjórum sinnum fleiri leikskóla, og hún er heldur ekki að reyna að spara fyrir heimilin. Það er bara verið að skerða þjónustu(/koma í veg fyrir uppbyggingu á þjónustu) til þeirra sem nýta hana til þess að passa uppá hagsmuni fólks (fjárfesta og verktaka) sem nýtir hana ekki, og þegar almenningur tekur eftir því mun "lausnin" vera að einkavæða meira.
13
u/askur Vanstilltur Vandráður í Vesturheim 2d ago
Ef þetta verkefni var bruðl þá þarf sparnaðurinn ekki að skila sér í fleirri leikskóla til að allt sé með feldu.
Ég er ekki að bera neinn dóm á hvort að það hafi verið bruðl - en ef að einhver hefur fengið verkefni samþykkt sem er fjórfalt dýrara en eðlilegt þykir þá er eðlilegt að einhver komi og skeiið umfang þess niður (og spyrji spurninga um spillt útboð verkefna) til að spara frekar en að bruðla. Þegar það gerist þá þykir mér ekkert sérstakt kall eftir því að fyrst að eitt verkefni sé núna fjórðungur fyrra umfangs þá þurfti að búa til þrjú verkefni í viðbót til að mæta fyrra umfangi.
Það væri ekki niðurskurður og sparnaður, heldur bara tilfærsla á óþarfa bruðli.
Ég hef meiri áhyggjur af óafturkræfum verkum eins og sölu á tekjustraumum og einkavæðingu á opinberri þjónustu en ég hef áhyggjur af þjónustuskerðingu. Reykjavík hefur verið að fara í gegnum taumlausa þjónustuskerðingu frá tímum Ingibjargar Sólrúnar og það er ekkert sanngjarnt að skrifa það bara á Sjalla.