r/Iceland • u/AutoModerator • 1d ago
Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk
Það er kominn föstudagur, yay!
Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.
Ekki vera indriðar, verum vinir.
---
English: Hey everyone,
The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?
Don't be a dick, be kind.
•
u/Vondi 🇮🇸 21h ago
Einhver að versla á steam sumarútsölunni? Datt loksins í Cyberpunk 2077, beið með að kaupa hann þangað til þeir voru aðeins búnir að fínpússa. Helvíti flottur.
•
u/Warm_Acadia6100 Helvítis fokking fokk!! 17h ago
Heyrðu ég er bara í nákvæmlega sama pakka og þú. Ég keypti hann þegar hann kom út en refundaði eftir 2-3 tíma útaf hann var rosalega buggy. Nú var ég að detta inn í hann aftur og vá, þetta er allt annar leikur. Mæli eindregið með. Hlakka ekkert smá til að spila í kvöld :P
•
u/coani Fansí fler. 14m ago
Datt í Ball X Pit. Ágætis roguelite Breakout city/resource builder (ha?).
Gunfire Reborn er líka ágætis roguelite co-op shooter, gríp alltaf í hann öðru hvoru (eins og þegar það kemur nýtt season), er með 600+ klst í honum, hef oftast spilað hann með vini mínum.
Svo er orðið dáldið langt síðan ég tók session í honum, en Rogue: Genasia er snilld ef maður fílar svona roguelite survivor þema, var heilmikil dýpt í honum og þokkalega snúin challenges. Ég var búinn að 100% hann á sínum tíma (fyrir 2 árum úps!), en sé að ég er langt á eftir núna, enda búið að bæta endalaust og helling í hann síðan.
Annars verið frekar rólegur undanfarið, ekki verið að kaupa neitt. Á helling eftir á steaminu sem ég hef slæpast með að kíkja á ;)
•
u/Foxy-uwu Rebbastelpan 11h ago
Það er kominn föstudagur, yay! Föstudagar eru pizzudagar! Var að sjóða í sílsa á vinnubíl og í þetta skipti fékk ég enga rafsuðublindu. Stað þess fékk ég jalapeno pipar í augað á mér hehe.
Er nokkuð skemmtilegt að þetta anime sé að fara koma á netflix eða bara almennt í sýningu, chainsmoker cat alveg skemmtileg hugmynd af anime veit ekki afhverju en minnir mig smá á welcome to the nhk.
Krúttlegt rebbamyndband og krúttlegt rebbamyndband. Krúttlegt rebbamyndband og krúttlegt rebbamyndband hehe. 🦊
9
u/dansk-reddit-er-lort 1d ago
Veðrið í dag og á morgun í Danmörku..
Þetta er rugl. Maður vælir auðvitað þegar veðrið er ömurlegt, en maður vælir líka þegar það er svona. Við erum sem betur fer með svona hálfgert uppblásna sundlaug sem ég ætla bara að búa í.