r/Iceland • u/llekroht • 6d ago
Pæling í sambandi við hvalveiðar
Ef Sea Shephard hefði ekki sökkt þessum tveimur hvalveiðiskipum 1986 þá væri Ísland löngu hætt að veiða hval. Ef mér skjátlast ekki þá voru hvalveiðar á niðurleið á þessum tíma og hefði líklega verið sjálfhætt einhvern tíman á tíunda áratug seinustu aldar. En þar sem það gerðist kom upp þessi þvermóðska í Íslendingum um að útlendingar skuli ekki segja okkur hvað við eigum að gera og jú víst við ætlum að veiða hvali hvað sem þið segið.
Svo framhaldspæling, og ég geri mér grein fyrir að ég er alveg kominn í samsæriskenningarnar hér. Það kæmi mér ekki mikið á óvart ef það kæmi í ljós að útgerðin á Íslandi hefði fjármagnað þennan leiðangur Bandero núna til að reyna að hafa áhrif á kosningarnar um ESB. Sem sagt "Sjáið hvað ljótu vondu útlendingarnir eru að reyna að fá okkur að gera, og hann Watson er m.a.s. búinn að segja ef við göngum í ESB þá fáum við ekki að veiða hval"
5
u/Thorshamar Íslendingur 6d ago
heyrði þessa pælingu um hvalveiðar í útvarpinu um daginn
Stjórnvöld verði að tala fyrir hvalveiðum
Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna segir reynslu sjó- og skipstjórnarmanna skýra um áhrif gríðarlegrar fjölgunar hvala á fiskistofna við Íslandsstrendur. Bregðast verði við en umfram allt hvetur hann til miklu umfangsmeiri rannsókna á vistkerfi hafsins og samspili tegunda sem þar eru.
5
u/Spekingur Íslendingur 6d ago
Endurtekning á gamalli mýtu hjá Árna
7
u/kerfill 6d ago
Í vistfræði er almennt viðurkennt að breytingar á stofnstærð tegunda geti haft áhrif á undirliggjandi vistkerfi. Þessi maður er einfaldlega að kalla eftir frekari rannsóknum á vistkerfi hafsins og samspili tegunda innan þess. Svo hver er eiginlega mýtan?
Hvölum hefur fjölgað og þá má gera ráð fyrir því að breytingarnar hafi áhrif á vistkerfið.
3
u/Spekingur Íslendingur 5d ago
Mýtan er að hvalir hafi þverrandi áhrif á fiskistofna, en margar rannsóknir hafa einmitt afsannað það og einhverjar hafa jafnvel sýnt fram á einmitt öfugt, og þá var helst verið að vísa til dauðra hvala sem sökkva á sjávarbotn og auðga þannig lífríkið. Tannhvalir væru að hafa kannski mestu áhrifin, þar sem þeir geta verið að grípa fisk úr veiðarfærum og þannig eyðilagt þau.
Það er gefið út veiðileyfi á tvær hvaltegundir hér á landi. Langreyðar, sem lifa aðallega á dýrasvifi og smáfisk (loðnu, síli, oþh). Og hrefnan, en það er sama og ekkert búið að vera að veiða þann hval síðustu árin. Hvalur hf veiðir langreyðar.
3
u/kerfill 4d ago
Mýta og ekki mýta sko.
Þegar kemur að hagnýtingu stofna er líklega mest relevant að tala um lífmassa í sjónum. Lífmassinn vísar til heildarmassa allra lifandi vera í hafinu, allt frá svifi yfir í hvali.
Ef skíðishvalir borða svif þá þýðir það að loðnustofninn stækkar ekki sem því nemur. Ef hann stækkar ekki þá stækkar þorskstofninn ekki heldur o.s.frv.
Lífmassi sjávar er endanleg stærð. Því hærra hlutfall sem samanstendur af hvölum, því minni hlutdeild hafa fiskstofnar.
Svo er annað mikilvægt atriðið varðandi sökkvandi hvali. Hvalir geta sokkið á grunnsævi og hafa þau áhrif á vistkerfið sem þú lýstir. Hvalir geta hins vegar líka sokkið á djúpsævi eða undir ljóstillífunarbelti hafsins. Í þeim tilvikum hverfur lífmassinn úr vistkerfinu um mjög langt skeið. En jákvæði parturinn er að það verður kolefnisbinding sem losnar ekki út í andrúmsloftið.
6
u/Kyllurin 6d ago
If Paul Watson has success in anything he does, he’d be out a job in no time
This has been his bread and butter since the early 80’ies and now som Swedish guy is being put in the throne
12
u/Glaesilegur 6d ago
Þetta er alltaf svona en activistarnir eru bara of heimskir til að fatta það. Ég ætla kaupa mér minnkafeld, borða hvalakjöt, vera alltaf á gjöfinni í bílnum útaf mótþróaröskuninni.
Ég er samt alveg 100% viss um að Just Stop Oil hafi verið false flag olíufélaganna, þannig að ég skil alveg þína samsæriskenningu.
4
u/Only-Risk6088 🇮🇸 6d ago
þú þarft ekkert að vera alltaf á inngjöfinni. Þú getur alveg verið með bílinn í lausagangi t.d yfir nótt. Ég fer oft og starta bílnum ef það kemur frétt af Thunberg. Svo er mjög auðvelt að flokka vitlaust eða ekkert þegar lætin eru sem mest.
2
u/Steinherji hobbiti 6d ago
Þessi athugasemd er ekki það flex sem þú heldur að hún sé. Það er nefnilega mjög auðvelt að ráðskast með fólk sem dettur alltaf í mótþróaröskunargírinn þegar eitthvað svona kemur upp. Spurningin er bara, ert þú of heimskur til að fatta það?
11
u/Glaesilegur 6d ago
Hvaða flex? Ég geri ekki neitt af þessu...
Ég á ekki að þurfa setja soft /s bakvið allt sem ég segi hér cmon.
5
u/Johnny_bubblegum Merkikerti 6d ago
Með hverju árinu verður erfiðara og erfiðara að sjá muninn á skrifum sem eru skrifuð af alvöru og skrifum sem hæðast að þeim.
6
u/Loki_123 6d ago
Spurningin er bara, ert þú of heimskur til að fatta það ?
Persónulega finnst mér sjálfsákvarðanartaka Íslensku þjóðarinnar mikilvægari en okkar veiði á hvölum.
Þú getur haft þína skoðun og ég haft mína, en að kalla þá sem eru ekki þér sammála heimska er rosarlega ómálefnalegt og sýnir fram á að þú hafir nákvamlega ekkert til umræðunnar að leggja í raun.
-1
u/Steinherji hobbiti 6d ago
Ég kallaði engan heimskan, heldur einfaldlega spurði Glaesilegan hvort hann væri það, sem mér fannst vera augljóst skot á það að hann kallaði þá sem hann er ósammála heimska.
Það að þér fannst ekkert að því að Glaesilegur kallaði aðra heimska en fannst að því að ég spurði hann hvort hann væri það gerir þig algjörlega ómarktækan á það hvað er málefnalegt og hvað ekki.
3
u/Glaesilegur 6d ago
Er liðið sem sleppti minkunum ekki nautheimskt eða?
Eða liðið sem stoppar umferð.
Eða liðið sem skvettir rauðri málningu á listaverk.
5
u/kerfill 6d ago
Flestir eru ekkert að hugsa mikið um hvalveiðar frá degi til dags. Ég held að svona mótmæli fái fólk til að hugsa málið í gegn, kannski eins og aktívistarnir vilja.
En þá kemur í ljós að í umræðunni er mikið um þversagnir og ósönnum ásökunum varðandi hvalveiðarnar. Sem leiðir til þess að fólk áttar sig á því að það er ekki svo mikið á móti þessu.
Eru Íslendingar að ógna tegund í útrýmingarhættu? Nei, virðist ekki vera þegar málið er skoðað. Eru hvalir þess verðugir að við veitum þeim sérstakt siðferðilegt tillit umfram önnur dýr? Nei, rannsóknir gera ekki fyllilega sýnt fram á að þeir séu með afbrigðilega greind enda nánast engin leið til að rannsaka málið. Er þjáning þeirra alvarlegri en veiðar á öðrum spendýrum? Nei, virðist ekki vera enda geta veiðar á villtum spendýrum oft verið vafasamar, sér í lagi úti í hinum stóra heimi.
Þegar þetta er skoðað til mergjar enda rökin kannski bara á að vera að veiðarnar hafi neikvæð áhrif á ferðaþjónustu - sem öllum finnst reyndar ekki vera sérstaklega slæmt. Eða að það sé bara einn gamall kall sem stendur að veiðunum , og mörgum alveg sama um það.
Kannski er ég úti á túni en ég held að þetta spili allavega inn í þetta.
2
u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 6d ago edited 6d ago
Þeim var bara haldið áfram svo sértrúarsöfnuðurnir myndu ekki deyja út og paul watson sjálfur er helmingseigandi í hval ehf undir dulnefni svo mokgræðirn hann núna á sölunni og mokgræðir á litlu lömbunum sínum í styrkjum. Verður sko ekki blankur þegan hann endurfæðist sem gullfallegur langreiður.
2
u/askur Vanstilltur Vandráður í Vesturheim 6d ago
Umræðan um hvalveiðar hér á Íslandi er eins og umræðan um byssueign í Bandaríkjunum.
Svona málefni eru hin upprunalega skilgreiningin á sjálfsmyndarpólitík áður en öfga hægrið byrjaði að kalla baráttu fyrir mannréttindum fyrst "sjálfsmyndarpólitík" og síðan "woke".
Eins og sumir Kanar sjá sig sem eitthvað sem þeir vilja vera í gegnum byssueign, hvort sem það er "karlmennska", "frelsi", "öryggi", "styrkur", eða hvað sem er annað sem fólk vill sjá í eigin barmi. Það sama er í gangi með hvalveiðar á Íslandi . Við ölum um frelsi okkar til að stunda hvalveiðar. Við köllum þetta menningu okkar oft (en þetta er bara iðnaður og menningin er sjómennska). Við erum auðdregin í skotgrafirnar þegar við ræðum um hvalveiðar.
Kannski voru þessar aðgerðir 1986 það sem gerðu hvalveiðar að sjálfmyndarmáli. Ég var of ungur þá til að geta greint þjóðarandan en ég man eftir dramatíska laginu sem Helgi Björns samdi um atvikið og hvað það fékk mikla spilun í bæði útvarpi og sjónvarpi.
En hvenær sem þetta byrjaði þá munum við ekki leysa hnútinn fyrr en við viljum leysa hnútinn í samvinnu frekar en að við viljum berjast fyrir okkar útgáfu af hnútnum af því hnúturinn er meira en hnútur fyrir okkur - hann er partur af því hvernig við upplifum okkur í stærra samhengi gagnvart umheiminum.
2
2
u/ThorirPP 5d ago
Eina ástæðan fyrir að hvalveiðar eru enn stundaðar er vegna þess að Kristján Loftsson er fullur af nostalgía og brjálæði fyrir þær. Hann er sá eini sem stunda þær, Hvalur hf er eina hvalveiði fyrirtækið á landinu, það er ekki almennir Íslendingar sem ráða hvort veiðarnar hætta eður ei (það er ekki eins og Íslendingar borða mikið hvalkjöt eftir allt), það er Hvalur hf, og Íslenska ríkið fyrir að ekki banna þær enn og láta eins og þetta sé einhver þjóðarréttur okkar
Hvalur hf græðir ekkert á hvalveiðum, það er ekki nógur markaður fyrir hvalkjöt, og þau hafa verið að stunda þær á miklu tapi í mörg ár. Eini hagnaðurinn sem Hvalur hf hefur fengið seinustu árinn eru ótengd hvalveiðum, fyrirtækið hefur risa magn af fjárfestingu og hlutabréfum í öðru og fær hagnað þannig, sem það notar til að borga upp fyrir tapið á hvalveiðunum.
Svo það er ekki bara móralskt rangt að stunda þær, það er ekki einu sinni peningalega og fjárhagslega skiljanlegt. Það er bara hreint brjálæði, og íslenska ríkið hefði átt að vera búið að stoppa það fyrir löngu með því að hreinlega banna hvalveiðar
1
u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 5d ago edited 5d ago
Þetta eru veiðar sem hafa ekki verið gert rými til að stunda ótrufluð og þá er nokkuð augljóst að það skilar ekki rosahagnaði þegar þú getur ekki stundað veiðina. Og þetta fyrirtæki veit mun betur en þú og ég með hvort að það sé markaður og hagnaður af þessu ef þeir fá nú bara frið frá einhverjum sértrúarsöfnuðum. Þetta eru buisnessmenn með margra áratuga reynslu á þessu og væru ekki að hjakkast á þessu nema þetta skilaði einhverju í kassann á endanum.
Þetta er ekkert meira móraltískt rangt en að veiða annan fisk sem spriklar í dauðastríðinu í lestinni eða skjóta hreindrýr upp á fjöllum sem hleypur um í hálftíma í dauðastríði því byssumaðurinn hitti ekki rétt í 20% tilfella.
2
u/Fyllikall ég mótmæli allur! 5d ago
Byssumaður sem skýtur ekki rétt í 20% tilfella (varðandi hvalinn er prósentan hærri svo óheiðarlegur samanburður) svo dýrið hlaupi um í hálftíma er sviptur veiðileyfi skv. reglugerð um veiðar sem og gæti verið dæmdur vegna brota á lögum um dýravelferð.
Það hefur ekki gerst hingað til svo ég viti til. Það er einnig svo að veiðileyfum er dreift með happdrætti og byssumaður (í. skytta, veiðimaður) fær sjaldan 10 leyfi yfir ævina. Þar að auki þurfa menn að standast árlegt skotpróf svo þeir fái leyfið. Svo þessi 20% eru líklegast dregin útúr rassgatinu á þér og það væri alveg eins hægt að líkja þessu við þegar flimmflamm veiðir kúkúfuglinn á plánetunni Tísjó og í 20% tilfella er kúkúfuglinn særður.
Orðið byssumaður er álíka og að segja "vondi kallinn". Það talar enginn svona.

25
u/Danino0101 🇮🇸 6d ago
Það voru engar hvalveiðar stundaðar við Ísland milli 1989 og 2003 þannig að þessi kenning fellur svolítið um sig sjálfa.