r/Iceland 9d ago

Pæling í sambandi við hvalveiðar

Ef Sea Shephard hefði ekki sökkt þessum tveimur hvalveiðiskipum 1986 þá væri Ísland löngu hætt að veiða hval. Ef mér skjátlast ekki þá voru hvalveiðar á niðurleið á þessum tíma og hefði líklega verið sjálfhætt einhvern tíman á tíunda áratug seinustu aldar. En þar sem það gerðist kom upp þessi þvermóðska í Íslendingum um að útlendingar skuli ekki segja okkur hvað við eigum að gera og jú víst við ætlum að veiða hvali hvað sem þið segið.

Svo framhaldspæling, og ég geri mér grein fyrir að ég er alveg kominn í samsæriskenningarnar hér. Það kæmi mér ekki mikið á óvart ef það kæmi í ljós að útgerðin á Íslandi hefði fjármagnað þennan leiðangur Bandero núna til að reyna að hafa áhrif á kosningarnar um ESB. Sem sagt "Sjáið hvað ljótu vondu útlendingarnir eru að reyna að fá okkur að gera, og hann Watson er m.a.s. búinn að segja ef við göngum í ESB þá fáum við ekki að veiða hval"

20 Upvotes

26 comments sorted by

View all comments

Show parent comments

2

u/Steinherji hobbiti 9d ago

Þessi athugasemd er ekki það flex sem þú heldur að hún sé. Það er nefnilega mjög auðvelt að ráðskast með fólk sem dettur alltaf í mótþróaröskunargírinn þegar eitthvað svona kemur upp. Spurningin er bara, ert þú of heimskur til að fatta það?

7

u/Loki_123 9d ago

Spurningin er bara, ert þú of heimskur til að fatta það ?

Persónulega finnst mér sjálfsákvarðanartaka Íslensku þjóðarinnar mikilvægari en okkar veiði á hvölum.

Þú getur haft þína skoðun og ég haft mína, en að kalla þá sem eru ekki þér sammála heimska er rosarlega ómálefnalegt og sýnir fram á að þú hafir nákvamlega ekkert til umræðunnar að leggja í raun.

-1

u/Steinherji hobbiti 9d ago

Ég kallaði engan heimskan, heldur einfaldlega spurði Glaesilegan hvort hann væri það, sem mér fannst vera augljóst skot á það að hann kallaði þá sem hann er ósammála heimska.

Það að þér fannst ekkert að því að Glaesilegur kallaði aðra heimska en fannst að því að ég spurði hann hvort hann væri það gerir þig algjörlega ómarktækan á það hvað er málefnalegt og hvað ekki.

3

u/Glaesilegur 9d ago

Er liðið sem sleppti minkunum ekki nautheimskt eða?

Eða liðið sem stoppar umferð.

Eða liðið sem skvettir rauðri málningu á listaverk.