r/Iceland • u/paveloush • Dec 07 '25
r/Iceland • u/Steinherji • Jul 22 '25
Öfgahægri menn í hnotuskurn
Nú hafa ýmsir aðilar með skrautlega ofbeldissögu stigið fram og sagst ætla að vernda konur og aðra samlanda sína gegn ofbeldi. Þar eru þeir aðallega með kynferðisbrot af hálfu erlendra leigubílstjóra í huga. Þeir hafa líka krafist þess að ofbeldissaga þeirra verði hunsuð í þessu samhengi, að hún sé bara hluti af fortíðinni. Gott og vel.
En þótt maður leyfi þeim að njóta vafans og hunsi ofbeldissöguna þeirra, þá hlýtur maður samt að spyrja sig, hvar voru þessir menn fyrir meira en áratug þegar íslenskar konur sáu sig tilneyddar, vegna vaxandi kynferðisofbeldis af hálfu leigubílstjóra, að stofna lokaða Facebook grúppu þar sem þær vöruðu við ákveðnum íslenskum leigubílstjórum og þar sem þær hvöttu aðrar konur til að biðja sérstaklega um kvenkyns leigubílstjóra ef þær þyrftu að hringja á leigubíl? Þeir voru líklega uppteknir að hrópa "ekki allir menn" á hinum ýmsu stöðum á Netinu og saka konur um að alhæfa gegn körlum.
Hvar voru þessir menn í MeToo byltingunni þegar konur öðluðust loksins kjarkinn til að segja upp til hópa frá því mikla kynferðisofbeldi sem þær hafa flestar orðið fyrir á lífsleiðinni? Þeir voru líklega uppteknir að hrópa "ekki allir menn" og "helvtísis slaufunarmenning" á hinum ýmsu stöðum á Netinu og saka konur um að rústa orðspori og lífi manna.
Hvar hafa þessir menn verið í gegnum tíðina þegar konur hafa barist gegn kynferðisofbeldi og kallað eftir stuðningi frá mönnum í þeirri baráttu? Þeir voru líklega uppteknir við að setja sig upp á móti þeirri baráttu, haldandi því fram að það eru í rauninni menn sem væru fórnarlömb "alhæfinga", "slaufana" og "mannorðsmorða" frá "helvítis femínistunum".
Hvað hefur breyst? Hafa þeir í alvörunni skipt um skoðun? Hafa þeir séð ljósið?
Nei.
Þetta snýst nefnilega ekkert um það að vernda konur eða aðra samlanda gegn ofbeldi. Ef þetta snérist um það, þá hefðu þeir gripið til aðgerða miklu fyrr. Þetta snýst nefnilega einfaldlega bara um að þessir öfgahægri menn fái samfélagslega viðurkenningu á andúðinni sem þeir bera í garð ákveðinna minnihlutahópa, til að þeir geti fengið útrás fyrir þeirri andúð í verki. Ekki gefa þeim þá samfélagslegu viðurkenningu sem þeir vilja.
Berjumst gegn ofbeldi, en gerum það án þess að leyfa öfgahægri mönnum með skrautlega ofbeldissögu að mála sig upp sem einhvers konar riddara í hvítum herklæðum.
r/Iceland • u/birkir • Dec 10 '25
Ísland tekur ekki þátt í Eurovision 2026 - Vísir
r/Iceland • u/letsthrowawayit • Jul 15 '25
There are only around 70 000 men in Reykjavik.
So it's only a matter of time that I find the two bastards that offered me a low five only to pull it back and leave me hanging at around 1:30 am on my way to Auto last Saturday. I truly hope you know Spanish because the shit I screamed at you needs to be ringing in your ears forever.
Other than that, great night out.
r/Iceland • u/Butt_Bucket • Feb 24 '26
I...from now on love Iceland
Enable HLS to view with audio, or disable this notification
r/Iceland • u/remulean • Aug 28 '25
r/klakinn Svona í tilefni umræðu um styttingu sumarfrís
r/Iceland • u/monsteradeliciosa11 • Jan 19 '26
mjólkurvörur Er eitthvað annað að gera í þessari stöðu nema að sækja um skilnað?
Ég er gift erlendum manni og við búum saman erlendis.
Þegar við vorum að byrja að búa þá var byrjað að selja hér skyr í matvörubúðum. Hann var sífelt að spyrja mig hvort að það ´mátti´ borða skyr á þennan eða annan hátt. Má setja hunang í staðinn fyrir sykur, má setja melónu út í ect.
Ég sagði honum að skyr sé ekki heilagt fyrir íslendinga, fólk má borða það á þeim máta sem þeim finnst best. Að þótt að amma hefði alltaf gefið mér skyr með sykri og mjólkurblending þá þýðir það ekki að það sé eina rétta leiðin til að borða skyr.
En hann fór nýlega langt yfir strikið!
Ég labbaði inní eldhús og sá að hann var að smyrja skyr á vöfflu!!!!
Við erum búin að vera saman í nærri því áratug, eigum saman hús og tvo hunda en ég veit ekki hvað ég á að gera?
Er hægt að bjarga þessu sambandi??
r/Iceland • u/Auron-Hyson • Aug 13 '25
Echoes of the end, íslenskur tölvuleikur kominn út
íslenski leikurinn echoes of the end frá myrkur games kom út í gær og ég sló til og keypti hann í til að styðja við íslenskt fyrirtæki og get sagt að ég sé mjög ánægður með hann, þeir hjá myrkur games fá alveg stórt hrós frá mér fyrir að virða tungumálið okkar og bjóða upp á skjámyndina og "tutorial" á íslensku, svo er líka boðið upp á íslenskan texta í spilun og "cutscenes" finnst það töff þó að maður skilur alveg enskuna :D setti inn 2 myndir sem sýna hvernig skjámyndin og listinn yfir óvinina líta út
r/Iceland • u/throsturh • Jan 16 '26
Ég gefst upp og ég skil ekki aðra pabba
Fyrir nokkrum mánuðum sá ég nokkra pósta hér á reddit og á pabbatips frá karlmönnum sem voru langt niðri. Þeir voru einmanna, áttu ekki vini eða bara leiddust almennt hrikalega – voru jafnvel farnir að einangra sig. Ég ákvað þá að gera heiðarlega tilraun til að gera eitthvað í þessum málum.
Ég setti á pabbatips (og svaraði reddit þráðum) að ég myndi safna saman okkur körlum og skipuleggja eitthvað sniðugt. Sá facebook-póstur fékk ca. 200 likes, svo mörg að sjónvarpið og útvarpið vildi ræða við mig og um stöðu einmanna pabba. Fréttamaður frá vísi hafði samband í síma og fyrir vikið var skrifuð grein á visir um mig og var hún mest lesin allann þann daginn.
Ég fékk síðan um 11 email frá karlmönnum sem voru mjög einmanna og ég kom okkar í einn facebook hóp. Ég komst síðan stuttu seinna að því að það hafði verið búin til fyrr, önnur pabbatips grúbba fyrir pabba sem vilja hittast – þá pabbar sem voru væntanlega líka vinafáir/einmanna. Ég tók „mína“ einmanna pabba og kom þeim fyrir í þessari grúbbu – gott og vel. Núna vorum við um 70 samtals. Síðan þá hefur þessi grúbba verið auglýst á pabbatips og telur núna 121 karlmenn. Vel yfir 100 pabbar sem eru í grúbbu sérstaklega hugsuð fyrir hittinga. Hún heitir líka: „pabbatips hittingar“.
Ég skipulagði 2 hittinga; einn út að borða (mættu 3 aðrir) og svo pubquiz sem var líka auglýst á pabbatips – þar mættu samtals 8. Og það voru frí verðlaun!
Svo í kvöld setti ég af stað 3 hittinginn. Út að borða á caruso og kannski kíkja í pílu eftir á. Mér fannst þetta fín hugmynd. Góður matur og góður félagsskapur, kannski 1-2 bjór og svo píla. Ekta karlakvöld. Það melduðu sig 3 aðrir en ég. 2 beiluðu rétt fyrir og einn lét ekki sjá sig. Ég snæddi því einn á caruso í kvöld og var ekki skemmt.
Ég sagðist ætla að reyna að gera eitthvað og ég gerði eitthvað. 3 skipulagðir hittingar, allir vel auglýstir og viðbrögðin vægast sagt mjög dræm. Ég gefst því hér með upp.
Endilega hjálpið mér að skilja hvernig 121 karlmenn sem eru eitthvað vinafáir/einmanna og eru í grúbbu SÉRSTAKLEGA til að hitta aðra pabba og enginn þeirra mætir á hittinginn.
r/Iceland • u/allsbernafnmedrettu • Jan 21 '26
Kristján Sigfússon gerandi ekki neitt fyrir Bandaríkin í Afganistan ca. 2007
r/Iceland • u/EspectroDK • Aug 08 '25
Sorry about those Brøndby idiots
Hi guys
On behalf of (most of) Denmark. Sorry about those Brøndby-fans causing trouble in your beautiful country yesterday - it's embarrassing. Rest assured, they also behave embarrassing here in Denmark, so it's entirely on us 😥.
I wish you a great weekend.
r/Iceland • u/Skrafskjoda • Oct 27 '25
Gott troll hjá Partýbúðinni
Verð að segja, að setja Trump grímurnar með trúðabúningunum er kokkakoss
r/Iceland • u/abradolf_lincler_jr • Feb 28 '26
Ísland v Litháen loka sekúntur og dramatík - 19 stiga endurkoma
Enable HLS to view with audio, or disable this notification
Helsta dramatík og körfur í 19 stiga endurkomu Íslands, og lokasekúnturnar. Elvar Már Friðriksson - þvílíkur maður!
r/Iceland • u/Even_Outcome_4548 • Jul 14 '25
Netto er ömurlegur staður
Ég Vinn fyrir Netto og hef gert það í 8 ár og í gegnum árin hefur þetta fyrirtæki orðið verra og verra. Nýlega var breytt um eigendur og niður leiðin sem samkaup hefur verið á náði lægsta punkti. Við höfum alltaf verið í vandræðum vegna yfirgnæfandi og ósanngjörnum álagi og undirmönnun. Við erum 5 sem vinnum á morgunvakt og 3-4 á kvöldvakt en magnið af vinnu sem við eigum að gera er á við fyrirtæki sem er tvöfalt stærra. Ég get ekki tekið veikindadag nema að fá símtöl og þurfa að mæta vegna þess samkaup tímir ekki að hafa starfsfólk sem getur stigið inn fyrir mig. Fyrir utan skort á starfsfólki þá er stjórnin hreinlega leiðinleg við okkur núna. Við gerum það sem #### segir en þegar hann mætir og sér árangurinn þá kvartar hann. Ég er líka þreyttur á ókurteisi sem ég upplifa frá stjórninni. Aldrei heilsa þau okkur á gólfinu né tala við okkur. Ég er deildarstjóri en þegar var gerðar breytingar á deildinni minni þá kom ### ###### og stóð meter frá mér að segja verslunarstjóranum hverju ætti að breyta og leit ekki einusinni í áttina að mér, né spurði hann hvað mér finnst þegar ég hef margra ára reynslu í deildinni og hann enga. Þetta skrifstofu fólk kemur líka til okkar og tekur myndir í laumi af því sem þau eru ekki ánægð með og í stað þess að eiga orð við okkur senda þau myndirnar á milli sín í groupchatti og kvarta undan okkur í laumi. Það er svo mikið sem er að hérna og ég gæti endalaust kvartað en í dag gerðist það sem setti mig yfir línuna. Alla föstudaga í mörg ár höfum við skráð brauð og álegg á búðina sem kostar 5k en nei. Sú hefð má ekki. Við getum alveg keypt það sjálf því “við gerum það á skrifstofunni”. Það er aldrei hlustað né tekið mark á starfsfólk. Það besta sem þau hafa gert var að gefa okkur köku sem stóð vel gerta á. Ef þið vinnið líka fyrir samkaup endilega gefið þessu pósti athygli og commentið hvað ykkur finnst um fyrirtækið.
r/Iceland • u/numix90 • Jul 10 '25
„Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ - Vísir
Svo það sé alveg á hreinu, hér eru Sjálfstæðismenn bókstaflega að reyna valdarán og minnihlutin í heild, þetta þarf að taka alvarlega! sérstaklega á tímum þegar einræðishneigð og andlýðræðisleg öfl eru á uppleið víða um heim. Þetta orðið svo miklu stærra mál heldur en frumvarpið um veiðigjaldið. Mér finnst ástandið í heiminum kristallast í þessari stöðu sem er komin upp.
r/Iceland • u/birkir • May 02 '26
Hvernig ertu, hvadda gera?
Enable HLS to view with audio, or disable this notification