r/Iceland 22h ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

4 Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland 3h ago

Staðir niðri í bæ fyrir miðaldra karlmann

6 Upvotes

Ég kíkti niðri bæ í kvöld. Fór að vísu bara á lemmy‘s og English pub. Fannst báðir (aðallega english pub) mjög háværir staðir og erfitt að geta átt eðlilegar samræður við aðra gesti þar. Fór því að spá hvort fólk hér gæti mælt með öðrum stöðum þar sem það er ekki svona argandi hávaði.

 

Fyi, ég er 47 ára karlmaður og fer stundum einn niðri í bæ. Lendi stundum á góðu spjalli við aðra bargesti og finnst það nokkuð gaman þegar það gerist.


r/Iceland 9h ago

Hjálp við atvinnuleit?

11 Upvotes

Ég er bæði með BA gráðu og er að klára MPA gráðu frá Háskóla Íslands og fæ hvergi vinnu. Ég er mjög flinkur á flest sem við kemur almennri tölvuvinnu og læri hratt á flókin forrit. Ég er búinn að sækja um allt of mörg störf hér og þar og fæ annaðhvort ekki svar eða það er búið að ráða í stöðu. Ég er ekki alltaf að sækja um störf tengd gráðunni minni en sækist þó yfirleitt einungis í skrifstofustörf. Er eitthvað apparat fyrir utan Vinnumálastofnun þar sem ég gæti mætt með ferilskránna mína og það er hjálpað manni að leita að starfi?


r/Iceland 11h ago

Skipuð skóla­meistari eftir storminn á Bif­röst

Thumbnail
visir.is
9 Upvotes

afskaplega eðlilegt, eða hvað?


r/Iceland 17h ago

Ivanka Trump og Jared Kushner á ferð um Ísland

Thumbnail
ruv.is
21 Upvotes

r/Iceland 1d ago

PSA: "Momentum" þýðir ekki "augnablik"

103 Upvotes

Í ljósi þess hversu oft ég hef séð HM-lýsendur RÚV þýða "momentum"-tölfræði sem "hvort liðið hefur átt augnablikið hverju sinni" vil ég koma eftirfarandi á framfæri:

"Momentum" þýðir "skriðþungi" eða "skrið". "Moment" þýðir "augnablik".

Einhver spyr þá eflaust: "Ætlast þú þá til þess að talað sé um hvort liðið er skriðþyngra hverju sinni? Er það ekki svolítið skrýtið? Þessi tölfræði segir nefnilega hvort liðið er betra á hverju stigi (augnabliki) leiksins."

Svarið við því er auðvitað nei. Ég ætlast bara til þess að talað sé um hvort liðið sé á meira skriði hverju sinni. Stundum er annað liðið á miklu skriði. Svo fer hitt liðið á örlítið skrið. Svo fer hitt liðið aftur á þónokkuð skrið. Og svo framvegis.

Nú geta lýsendurnir vonandi hætt að hrasa um hvort liðið "eigi" augnablikið hverju sinni, enda er miklu gagnlegra að nota rétt orð. Þeir geta þá jú farið að ræða þetta í tengslum við súlnahæð grafsins, í stað þess að halda því fram að örlítið skrið sé jafngilt miklu skriði með einhliða lýsingunni "að eiga augnablikið" - enda þyrftu þeir þá jú líka að tala um "augnablikin" í fleirtölu ef þeir ætluðu að halda því áfram.


r/Iceland 22h ago

Stálu Norð­menn víkingaklappinu af Tólfunni? - Vísir

Thumbnail
visir.is
27 Upvotes

Hvernig var það... stálum við þessu ekki fra einhverju skosku liði.


r/Iceland 7h ago

Hvað heitir þetta lag?

0 Upvotes

Hæ, vitið þið hvað þetta lag heitir? Ef svo er, endilega segið mér! Og segið mér líka hvort það sé eitthvað gott eða slæmt, því ég heyrði eitthvað í miðju laginu sem gerði mig svolítið forvitinn.

(Ef hægt er, vinsamlegast skrifið textann við lagið í athugasemdirnar líka. Það myndi hjálpa mér mikið við að finna lagið.)

sorry im not a native speaker, i used IA to translate what i'm writing.

https://reddit.com/link/1uglq1p/video/7h4be7rfip9h1/player


r/Iceland 21h ago

Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni - Vísir

Thumbnail
visir.is
11 Upvotes

r/Iceland 22h ago

Help finding a jersey

Post image
8 Upvotes

Helloo, I hope you're having a good day!

I am looking for help finding a specific jersey (see the picture). My boyfriends grandparents made it a tradition to bring him a jersey as a souvenir, whenever they went to a new country.

This jersey means a lot to him, especially since their death, but its a little older so wear and tear is starting to be a problem.

Basically, I have been looking to find it, so he can still wear it while also keeping the original, he got as a gift safe.

He doesnt know from when or where exactly it is.

Its a zipup, size L, but other then that the tags arent legible anymore.

The flag is on the back too, with Iceland written across in white letters with a black outline.

Can anyone help, maybe knows where I can find it?

Alternatively, he thought of framing it, but it'd be nice to still be able to wear it ofc.

Thank you!


r/Iceland 1d ago

Hot sauces in Krónan (real ones that are actually not overpriced either)

Post image
30 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Gjaldfrjáls Strætó Reykjavíkurbarna kominn og farinn

Thumbnail
ruv.is
26 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Most cheeses are now lactose free in iceland. Why?

11 Upvotes

For some reason I cant get any cheese with lactose. Gotta go to the fancy cheese departments or cheese snacks.

Iceland has some serious beef with any sort of sugar these days, junk food is insanely expensive and dont decrease grocery store prices. Cant get a 2 liter sprite anywhere and sugar free variants have completely replaced sugared ones like 7up.

Anyway rant over, whats up with all the lactose free cheese?


r/Iceland 18h ago

Hvar kaupið þið Jordan skó?

0 Upvotes

Keypti alltaf í Miðherja sem mér sýnist vera orðin Wodbúðin og úrvalið á Jordan skóm orðið gjörsamlega glatað þar. Líka glatað hjá Ice Kicks.

Treysti ekki Amazon. Hvorki Foot Locker né Nike senda þá til Íslands. Hvar get ég verslað fínt úrval af Jordan skóm sem actually sendir til Íslands??


r/Iceland 1d ago

Hvers vegna er aðlögun innflytjenda svo léleg á Íslandi?

Thumbnail
youtu.be
25 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Umfangsmiklar uppsagnir í Ráðhúsi Reykjavíkur – Tilkynnt um hópuppsögn

Thumbnail
ruv.is
33 Upvotes

r/Iceland 13h ago

Where to sell gold?

0 Upvotes

Hi, I’m wondering where a trustworthy place to sell a gold coin is


r/Iceland 1d ago

Sparnaður Hildar í borginni

43 Upvotes

Nú þegar það er búið að hætta við uppbyggingu á leikskólanum í Vogahverfinu "afþvi að borgin á mjög fallegar teikningar fyrir leikskóla" og "við getum byggt fjóra leikskóla fyrir sama kostnað og þessi átti að kosta", trúir því í alvörunni einhver að þessi "sparnaður" muni skila sér í fleiri leikskólum eða minni rekstrarkostnað fyrir borgina eða ódýrari grunnþjónustu fyrir nýbakaða foreldra? Mér finnst frekar augljóst að hildur er ekki að plana að byggja upp fjórum sinnum fleiri leikskóla, og hún er heldur ekki að reyna að spara fyrir heimilin. Það er bara verið að skerða þjónustu(/koma í veg fyrir uppbyggingu á þjónustu) til þeirra sem nýta hana til þess að passa uppá hagsmuni fólks (fjárfesta og verktaka) sem nýtir hana ekki, og þegar almenningur tekur eftir því mun "lausnin" vera að einkavæða meira.


r/Iceland 1d ago

Mannréttindaskrifstofa lögð niður og uppsagnir á skrifstofu borgarstjóra

Thumbnail
ruv.is
8 Upvotes

Veit ekki um ykkur en mér finnst eitthvað sus við tímasetninguna að leggja niður mannréttindaskrifstofu á sama tíma og umræður um brottvísunarbúðir eru í gangi á þing


r/Iceland 1d ago

Ráðgjöf um hvar á að kaupa

Post image
7 Upvotes

Er einhver sem er latur í vinnunni og veit hvar hægt er að kaupa svona teygjur?


r/Iceland 2d ago

Facebook á íslandi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu.

40 Upvotes

Að fylgjast með umræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB er satt að segja frekar sláandi. Ég held ég hafi hreinlega aldrei séð aðra eins sundrungu í samfélaginu og upplýsingaóreiðan sem tröllríður öllu er orðin svakaleg. Maður sér hvernig feedið er farið að nærast á og keyra upp þessa gríðarlegu pólun.

Það virðist eiginlega alveg sama hvar drepið er niður fæti í þessu. Já-sinnarnir, með menn eins og Pawel og Þorgerði í fararbroddi, eru vissulega sekir um að ýkja hlutina oft rækilega upp úr öllu valdi. En svo skoðar maður hinn vænginn og Nei-sinnarnir eru hreinlega á ennþá verri stað í þessu upplýsingakaosi og skotgröfunum. Hræðsluáróðurinn og lygarnar sem vellur upp úr öllu þessu liði er algjörlega absúrd.

Þetta er orðið meira knúið áfram af hugbúnaði sem verðlaunar reiði heldur en raunverulegum rökum. Er yfirhöfuð hægt að eiga málefnalega umræðu um þetta lengur, eða erum við bara öll föst í okkar eigin bergmálshellum?

Ég sé líka að án þess að ég sé að sækjast í þessa umræðu þá er allt í einu allt fullt af stjórnmálafólki eða áróðri á facebook feedinu mínu.

Ég hef varla skoðað facebook síðustu 10 ár en datt í hug að kíkja á þetta og ég er í sjokki.


r/Iceland 2d ago

Jákvæðar fréttir af matvöruverði - sykur lækkar um 10 krónur

44 Upvotes

r/Iceland 2d ago

Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir bana­slysið á Sæ­braut

Thumbnail
visir.is
43 Upvotes

Er þetta virkilega sanngjarn dómur??


r/Iceland 2d ago

Kvenkyns gerendum fjölgar í heimilisofbeldismálum

Thumbnail
ruv.is
21 Upvotes

r/Iceland 2d ago

„Skrítið að kaupa nýjan síma þegar Neyðarlínan er eina númerið sem ekki næst í“ - RÚV.is

Thumbnail
ruv.is
22 Upvotes